Fókus

Dúett Dolly og Bono kominn út: Yfirgaf sjúkrabeðið til að syngja

Mynd
Dolly Parton. Mynd: Skjáskot YouTube.

Carnaval De Luz plata írsku hjómsveitarinnar U2 kom út í dag. Lokalag plötunnar er dúet Bono og Dolly Parton, lagið Torn, sem er jafnframt það síðasta sem Dolly vann að.  Torn er samið í sameiningu af U2, Dolly og Johnny McDaid, meðlims Snow Patrol, og er blítt kántrílag sem fjallar um rofin fjölskyldutengsl en hefur jafnframt víðtækari skírskotanir.

Dolly hljóðritaði lagið í Nashville í Tennessee í júní á þessu ári, þetta var hennar síðasta söngupptaka áður en hún lést þann 25. ágúst 2026.

Bono og McDaid endurskrifuðu textann og miðuðu hann við móður sem horfir upp á fjölskyldu sína leysast upp. Dolly féllst síðan á að taka upp nýju útgáfuna þeirra.

Dolly söng og samdi lög um fjölskyldur og tengsl þeirra á rúmlega 60 ára ferli sínum.

 

Tekin upp á meðan hún var veik

Dolly tók sönginn upp í júní, á sama tíma og hún glímdi við heilsufarsvandamál. Hún lést í ágúst, áttræð að aldri.

Bono sagði tímaritinu Rolling Stone frá upptökunni. Að hans sögn fór Dolly fram úr sjúkrarúminu til að syngja lagið. Hann sagði að það mætti ​​heyra á upptökunni. Hann átti erfitt með að trúa því að þessi rödd tilheyrði 80 ára gamalli konu. Hann bætti líka við að hann ætti erfitt með að hlusta á lagið í dag. Bono rifjaði upp að hann hefði upphaflega haft samband við Dolly til að vinna saman að hliðarverkefni sem sótti innblástur í írska þjóðlagatónlist.

„Hún sagði: ‚Þetta er aðeins of írskt fyrir minn smekk,‘“ sagði Bono við tímaritið Rolling Stone. „En hún bætti við: ‚Ég er með lag hérna. Það heitir Torn, viltu kannski reyna að færa það í einhverja aðra átt?‘“ „Hún söng af allri sálu og ég á erfitt með að trúa því að þarna sé á ferðinni 80 ára gömul kona,“ bætti Bono við í samtalinu. „Það snertir mig mjög að hafa átt svona náin augnablik með manneskju á borð við hana. Sú staðreynd að hún er ekki lengur á meðal okkar og engin leið er að ná í hana aftur, nema í gegnum lögin hennar vekur mann til alvarlegrar umhugsunar.“

Garret „Jacknife“ Lee, upptökustjóri U2, greindi frá því að Dolly hafi elska lokaútgáfuna af laginu. „Hún var svo stolt af söng sínum og upptökunni,“ sagði hann. „Hún var himinlifandi með útkomuna. Við vorum mjög kvíðnir um að hún myndi kannski ekki samþykkja þetta eða að henni myndi líða illa með það, en hún elskaði þetta.“

Carnaval De Luz eða Ljósahátíð inniheldur 12 lög. Platan er 16. plata U2 og sú fyrsta með nýju efni í níu ár. Albúmið prýðir mynd af hljómsveitarmeðlimum, sem er nett skírskotun til plötu Bítlana, Abbey Road. Árið í ár er það fimmtugasta sem U2 starfar, 

Mynd

U2 heldur í heimstónleikaferðalag í kjölfar plötunnar og hefur túrinn fengið nafnið The Greatest Show On Earth. Hann hefst í Mexíkó 23. febrúar 2027 og eru fyrstu tónleikar í Evrópu í Stokkhólmi í Svíþjóð 26. apríl.