Rafmagnsnotkun heimilistækja getur verið mjög mismunandi og sum þeirra reynast mun orkufrekari en fólk gerir sér grein fyrir.
Sænskur sérfræðingur hefur tekið saman hversu mikla orku algeng heimilistæki nota og bendir á að hægt sé að spara talsverðar fjárhæðir með einföldum breytingum.
Sænska ríkissjónvarpið SVT fjallar um málið í tilefni af hækkandi raforkuverði í suðurhluta Svíþjóðar. Samanburðurinn byggir á sænskum aðstæðum en gefur engu að síður áhugaverða mynd af því hversu mismikil orka fer í dagleg heimilisstörf.
Henrik Severed, sérfræðingur hjá orkufyrirtækinu Jönköping Energi, segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því í hvað rafmagnið fer.
„Mér finnst að fólk eigi að vera meðvitað um í hvað það notar rafmagnið,“ segir hann.
Þurrkarinn mikill rafmagnshákur
Að sögn Severed eru gólfhiti og notkun á heitu vatni meðal þeirra þátta sem geta vegið þungt í orkukostnaði heimila. Þegar kemur að hversdagslegum heimilisstörfum er það hins vegar þurrkarinn sem sker sig sérstaklega úr.
„Það sem stendur upp úr er þurrkarinn. Ef þú ert með eldri þurrkara geturðu sparað tíu til fimmtán krónur fyrir hverja þurrkun,“ segir hann og vísar þar til sænskra króna.
Hægt að laga 50 kaffibolla
Jönköping Energi tók jafnframt saman hversu lengi hægt væri að nota ýmis heimilistæki fyrir eina kílóvattstund (kWh) af rafmagni.
Samkvæmt útreikningunum dugar ein kílóvattstund til að laga um 50 kaffibolla. Fyrir sömu orku má nota hárþurrku í um 27 mínútur, ryksugu í eina klukkustund og 24 mínútur eða hrærivél í tvær klukkustundir.
Þá má láta 40 watta glóperu loga í 25 klukkustundir og þvo eina til tvær þvottavélar á 40 gráðu þvottakerfi.
Samkvæmt samanburðinum dugar ein kílóvattstund einnig fyrir um tíu mínútna notkun á gufubaði eða átta mínútna notkun á spanhelluborði.
Tölurnar eru þó aðeins til viðmiðunar enda fer raunveruleg rafmagnsnotkun eftir afli, aldri og orkunýtni tækjanna, auk þess hvernig þau eru notuð.
Severed hvetur fólk fyrst og fremst til að vera meðvitað um rafmagnsnotkun sína og hvar mögulegt sé að draga úr henni.