Fókus

Hættu að leita að nýjum uppskriftum - Þetta er lykillinn að þyngdartapi

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Pexels

Ertu stanslaust að leita að nýjum uppskriftum til að prófa og reynir að hafa matseðil dagsins fjölbreyttan og öðruvísi á hverjum degi? Ef fitutap er markmið hjá þér þá gæti verið málið að hætta því.

Hátt í 30 langtímarannsóknir á þyngdartapi sýna að fólk sem léttist þyngist á innan við tveimur árum, innan fimm ára hafa yfir 80 prósent þyngst aftur. Það er erfitt að léttast, en það er jafnvel erfiðara að viðhalda þyngdartapinu.

Lykillinn gæti verið stöðugleiki. Samkvæmt nýlegri rannsókn er betra að borða sömu eða svipaðar máltíðir á hverjum degi, til dæmis endurtaka sama morgunmatinn dag eftir dag.

Samkvæmt rannsókninni missti fólk sem borðar endurtekið sömu máltíðirnar 37 prósent meira en fólk sem er sífellt að breyta mataræðinu.

En af hverju? Einfalt og fyrirsjáanlegt mataræði auðveldar fólki að viðhalda heilbrigðum venjum. Þetta aukir líka þægindin, fæstum þykir gaman að þurfa að svara spurningunni: „Hvað á að vera í matinn?“ á hverjum degi, og hvað þá að þurfa að plana hollan morgunmat, hádegismat og millimál. Þegar sömu máltíðirnar eru endurteknar hverfur þörfin fyrir að taka ákvörðun og líklegra er að fólk velji hollari valkost.