Fókus

Hafþór Júlíus hitti örlagavald sinn – „Þekkir þú þennan mann?“

Mynd
Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus er betur þekktur sem Fjallið.

Aflraunamaðurinn og leikarinn Hafþór Júlíus Björnsson hitti mann sem má með sanni segja að sé hans örlagavaldur. Það er rithöfundinn George R.R. Martin.

Í færslu á samfélagsmiðlum birtir Hafþór ljósmynd af sér og eiginkonu sinni, hinni kanadísku Kelsey Henson, ásamt rithöfundinum sem er nú orðinn 78 ára gamall.

„Þekkir þú þennan mann?“ segir í færslunni.

Ekki er blöðum um það að fletta að Martin var örlagavaldur Hafþórs Júlíusar. Eftir að hann lék í þáttunum um Krúnuleikana, byggðum á bókum Martin, hlaut hann viðurnefnið „Fjallið“. En það er persónan sem Hafþór lék, það er Gregor „The Mountain“ Clegane.

Hafþór hefur unnið sér margt til frægðar, svo sem slegið heimsmet, keppt í hnefaleikum og unnið titilinn „Sterkasti maður heims“. Engum dylst hins vegar að frægðarsól hans hafi aldrei skinið eins skært en eftir að hann lék sjálft Fjallið.

Mynd
Kelsey Henson, George R.R. Martin og Hafþór Júlíus Björnsson. Mynd/Facebook