Fókus

Faðir Russel Brand brást ókvæða við þungum dómi sonarsins - „Ertu að tala um stelpurnar sem eltu og áreittu hann?“

Mynd

Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand hefur verið dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn þremur konum. Leikarinn var sakfelldur af kviðdómi í síðustu viku og refsing hans var ákvörðuð í dag.

Russel Brand er í dag 51 árs gamall en brotin áttu sér stað á árunum 2004-2009 en segja má að þá hafi leikarinn verið á hátindi ferils síns í Bretlandi. Dómarinn fór hörðum orðum um leikarann í dómsalnum í dag og kallaði hann meðal annars kynferðislegt rándýr.

Eiginkona leikarans, Laura Gallacher, hrundi grátandi saman þegar ljóst var að maður hennar yrði í fangelsi til lengri tíma. Þegar lögreglumenn leiddu leikarann burt mátti sjá hann segja við konu sína í hljóði: Ég elska þig, þetta verður allt í lagi.

Faðir leikarans, Ron Brand, var einnig í miklu uppnámi. Hann sagði þolendur í málinu hafa áreitt son sinn og elt hann á röndum. Ron trúir á sakleysi sonar síns þrátt fyrir sakfellinguna.

Aðspurður um hvort hann hefði skilaboð til þolenda leikarans sagði faðirinn: „Þolenda? Hvaða þolandi, Russel? Ertu að tala um stelpurnar sem eltu og áreittu hann?“

Augljóst er að Ron telur son sinn vera raunverulegt fórnarlamb málsins en Ron segist nú hafa alla trú á breska réttarkerfinu. „Ég hef enga trú á því miðað við það sem ég hef nú séð. Séð á samfélagsmiðlum, það er auðvelt að finna rétta kviðdóminn. Farið bara á Facebook og sjáið hvað fólkið er þar að segja. Ertu að segja mér að þeir geti ekki bara farið á samfélagsmiðla, séð hvað fólk er þar að segja og fundið fólk sem hefur ráðist á hann?“

Þar með telur Ron að kviðdómur hafi verið handvalinn úr hópi fólks sem hafði lýst neikvæðri afstöðu til leikarans á samfélagsmiðlum.

„Ég er að segja að það er mögulegt, ert þú að segja mér að það sé það ekki?“

Ron telur þó að sonur hans muni spjara sig í fangelsinu og það muni tengdadóttir hans líka. Þau séu bæði sterkir einstaklingar.