Leikarinn Stacy Keach lést á þriðjudag, 85 ára að aldri, eftir að hafa glímt við hjartasjúkdóm.
Keach var þekktur fyrir hlutverk sín í Bourne Legacy, Blue Bloods og fjölda annarra.
Hann lætur eftir sig eiginkonu, Malgosia Keach, og tvö börn þeirra, Karolina og Shannon Keach. Eiginkona Keach greinir frá að hann lést á heimili sínu í Magdalenka í Póllandi.
Leikarinn átti í „langri og erfiðri baráttu við alvarlegan hjartasjúkdóm og hjartabilun,“ sagði hún í yfirlýsingu.
„Stacy var ekki aðeins goðsagnakennd leikari, dáður og elskaður af áhorfendum um allan heim, heldur einnig ástkær eiginmaður minn, förunautur minn og hjarta fjölskyldu okkar. Fráfall hans skilur eftir ómælt tómarúm í lífi okkar. En einstakur andi hans, ógleymanleg rödd hans og kærleikurinn sem hann gaf svo örlátlega mun fylgja okkur að eilífu.“
Umboðsmaður Keach: „Ég vann með honum í 30 ár og mun sakna hans mjög. Hann var örlátasti og góðhjartaðasti einstaklingurinn og sannarlega frábær leikari.“
Síðasta hlutverk Keach var í kvikmyndinni Jay Kelly frá árinu 2025, þar sem George Clooney og Adam Sandler léku aðalhlutverkin.
Keach fæddist í Savannah í Georgíu en ólst að mestu leyti upp í Los Angeles. LMóðir hans, Mary Cain Peckham, var leikkona, og faðir hans, Walter Stacy Keach eldri, var leikstjóri, leiklistarkennari og leikari.
Keach lauk BA-gráðu í ensku og leiklist frá UC Berkeley, sem og meistaragráðu frá Leiklistarskólanum í Yale.
Keach á að baki farsælan feril á leiksviði. Árið 1969 var hann tilnefndur til Tony-verðlauna sem besti leikari í leikriti fyrir frammistöðu sína í Indians. Hann var einnig tilnefndur til Obie-verðlaunanna fyrir framúrskarandi leikaraframmistöðu árið 1967 fyrir MacBird! og árið 1973 fyrir Hamlet. Hann var tekinn inn í frægðarhöll bandarísku leikhúsanna árið 2015.
Keach lék einnig eftirminnilegar persónur í sjónvarpi. Hann lék einkaspæjarann Mike Hammer í gamanþáttunum Mickey Spillane's Mike Hammer á CBS, en fyrir þá frammistöðu hlaut hann tilnefningu til Golden Globe-verðlaunanna árið 1985 sem besti leikari í dramasjónvarpsþáttaröð.
Nýlega var hann þekktur fyrir að leika Cardinal Kevin Kearns í Blue Bloods á CBS. Meðal fjölmargra sjónvarpsþátta sem hann lék á eru hlutverk í Two and a Half Men, Ray Donovan og Prison Break og endurtekið raddhlutverk í The Simpsons.
Hann lék í þekktum kvikmyndum í gegnum tíðina, þar á meðal mynd Cheech og Chong frá 1978, Up in Smoke, American History X með Edward Norton frá 1998 og The Bourne Legacy með Jeremy Renner frá 2012.
Keach fékk stjörnu á Hollywood Walk of Fame árið 2019.