Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segist hafa verið hneyksluð á því að horfa á Íslendinga deila jólagjafaóskalista sínum á TikTok. Hún segir marga listanna með svívirðilega dýrum hlutum og spyr sig hvaða skilaboð við séum að senda til unga fólksins okkar með þessu.
Nú þegar líða fer að jólum hefur verið vinsælt fyrir fólk að deila því sem það langar í í jólagjöf á samfélagsmiðlum. Mikið hefur verið um slík myndbönd síðastliðnar vikur, sérstaklega þar sem mikið er um afsláttadaga í nóvember.
Sara hefur séð myndbönd þar sem vörurnar hlaupa á nokkrum tugum þúsunda og sumar í kringum hundrað þúsund krónur.
„Mér myndi ekki detta í hug að setja á óskalistann minn gjafir fyrir tugi þúsunda,“ segir hún og bætir við að ef hún yrði beðin um óskalista myndi hún setja vörur að andvirði fjögur til sjö þúsund krónur.
„Ég skil alveg að maður fái dýrar gjafir frá foreldrum eða maka, ég hef oft fengið dýrar gjafir frá til dæmis pabba mínum. En ef ég ætti að koma með hugmyndir inn á TikTok þá myndi ég koma með hugmyndir sem meika sens. Sérstaklega fyrir unga fólkið sem horfir á þetta og heldur að þetta sé staðallinn fyrir gjafir. Svo eru þau að fá sokka, bók, peysu og kannski inniskó. En svo er fólk með iPhone, Moon Boot, Dyson, vibration plate og svo framvegis [á sínum lista].“
Sara segist ekki trúa því að þessir einstaklingar séu að senda vinum og vandamönnum listann. „Elsku amma mín, hérna er óskalistinn minn. Þú getur keypt eitthvað þarna fyrir 36 þúsund, það er ódýrast á listanum,“ segir Sara.
„Ég er í sjokki yfir þessu, ég á ekki til orð.“
„Finnst þetta galið“
Myndbandið hefur vakið mikla athygli og taka margir undir með Söru.
„Sá óskalista þar sem engin gjöf kostaði minna en 16 þúsund,“ skrifar ein.
„Finnst þetta galið,“ skrifar önnur.
Sumir eru ekki sammála henni og segja gaman að sjá hvað aðra langar í og fá innblástur.
„Ég elska að sjá alla þessa lista og fá hugmyndir! Ég set alls konar delulu hluti á minn og finnst gaman að sjá hjá öðrum, finnst ég þannig fá vibe hvernig stíllinn er og svona,“ segir ein.
Í öðru myndbandi ítrekar Sara að þetta snúist ekki um að gefa eða þiggja dýrar gjafir.
„Það sem ég meina með þessu er að þegar þú ert að koma með jólagjafahugmyndir fyrir óskalista í myndbandi á TikTok, að þetta sé það sem er eðlilegt að vera með á listanum sínum. Ef ég væri að koma með hugmyndir fyrir ykkur, til að setja á eigin lista eða gefa, þá myndi ég ekki setja gjafir eins og til dæmis pabbi minn gefur mér. Ég er ekki að segja að maður megi ekki fá dýrar gjafir eða gefa dýrar gjafir.“