Fókus

Nefnir tvær ástæður fyrir skorti á stefnumótamenningu á Íslandi – „Þá muntu rekast á fyrrverandi“

Mynd
Unnur reifar tvær ástæður fyrir skorti á stefnumótamenningu á Íslandi. Skjáskot/Youtube

Unnur Eggertsdóttir leikkona og söngkona nefnir tvær ástæður fyrir því að stefnumótamenning hefur ekki tekið rótfestu á Íslandi. Önnur lýtur að smæð samfélagsins en hin að persónuleika þjóðarinnar.

„Ég held að aðal ástæðan fyrir því að við erum ekki með stefnumótamenningu á Íslandi er í fyrsta lagi að ef þú ferð á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur þá muntu rekast á fyrrverandi, þú munt rekast á fyrrverandi þess sem þú ert með á stefnumótinu, eða frænda bróður vinnufélaga þíns. Það næsta sem gerist er að allir vita að þú fórst á stefnumót með þessari manneskju,“ segir hún í færslu á Youtube.

Stefnumót á Íslandi geti erfiðlega verið eitthvað til að halda út af fyrir sig.

„Þú færð ekki þann lúxus að fara á einfalt og afslappað stefnumót. Þú getur ekki farið huldu höfði nema í kannski tvær sekúndur,“ segir Unnur, sem hefur vakið athygli í Bandaríkjunum á samfélagsmiðlum, með síðu sinni You Can Call Me Une.

Hin ástæðan sem Unnur nefnir snýr að Íslendingum sjálfum og skapgerð þeirra.

„Ég held að Íslendingar upp til hópa séu svolítið lokaðir, tilfinningalega,“ segir hún. „Við tölum um að vera bæld. Við berum ekki tilfinningar okkar á borð eins og margir Bandaríkjamenn gera. Þannig að sitja á veitingastað, horfa í augun á einhverjum og eiga samtal um sjálfa þig er mjög berskjaldandi fyrir okkur. Meira berskjaldandi en að laumast upp í leigubíl eftir djammið með einhverjum og deila líkama okkar með þeim.“

Færsluna má sjá á þessum hlekk.