Kylie Jenner stendur frammi fyrir fjórða málsókn sinni gegn fyrrverandi starfsmanni á aðeins sjö mánuðum.
Fyrrum ráðskona Jenner heldur því fram að hún hafi verið bitin af hundi, óvart útsett fyrir piparúða og fest sig inni í skáp Jenner í meira en klukkustund á meðan Jenner hló að hjálparbeiðnum hennar.
Samkvæmt dómsskjölum sem Page Six greinir frá höfðaði Dinora Carolina Cabria Amaya mál fyrir héraðsdómi Los Angeles þann 5. nóvember og sakaði Jenner, fyrirtæki hennar og nokkra starfsmenn um mismunun vegna fötlunar, hefndaraðgerðir, óréttmæta uppsögn og fjölmörg brot á vinnurétti.
Amaya hélt því fram að hún hefði byrjað að vinna fyrir stofnanda Kylie Cosmetics í mars 2025 og þénað 40 dollara á klukkustund í reiðufé (um 4900 krónur) en unnið sex daga vikunnar. Hún heldur því fram að henni hafi reglulega verið neitað um yfirvinnugreiðslur, hún hefði verið neydd til að vinna langan vinnudag og ferðast á milli eigna Jenner og „hefði ekki fengið greitt fyrir kílómetra eða ferðatíma“.
Í einu atviki hélt Amaya því fram að yfirmaður hennar, Laura Dooley, hefði fyrirskipað henni að fara inn í skáp Jenner með lykilorði og „hafi verið læst inni í meira en klukkustund“. Segist Amaya hafa hringt í ofboði í Dooley og beðið um hjálp, en Dooley á að hlegið og gert grín að vandræðum hennar.
„Enginn er heima sem getur hleypt þér út og ég get ekki gefið neinum öðrum lykilorðið, þú verður bara að bíða,“ á Dooley að hafa sagt við hana. Amaya hélt því fram að hún hefði verið skilin eftir inni í skápnum þar til einhver kom að lokum til að leysa hana úr haldi.
Amaya heldur einnig fram að hún hafi slasast á vinnustað í september 2025 þegar „ótryggður piparúði sprautaðist“ í augu hennar og andlit á meðan hún var að þrífa skúffu í þvottahúsi. Amaya hélt því fram að atvikið hefði valdið henni „óskýrri sjón, sviða, kláða, þurrki, ertingu og stöðugri sandkenndri tilfinningu.“
Ástandið versnaði að sögn næsta mánuði þegar Amaya hélt því fram að hún hefði verið bitin af hundi þegar hún var að þrífa hundakofa í einni af eignum Jenner. Samkvæmt kærunni tilkynnti hún um meiðslin en fékk enga marktæka aðstoð og keypti lyfseðilslaus lyf til að meðhöndla sig.
Amaya hélt því einnig fram að henni hefði verið fyrirskipað að yfirgefa herbergi eða vera fjarri augsýn vegna þess að Jenner vildi ekki sjá hana.
Hún hélt því fram að hún hefði að lokum verið rekin 6. febrúar, stuttu eftir að hafa spurt hvers vegna önnur ræstingakona fengi endurgreiðslu á kílómetragjaldi en hún ekki.
Lögmaður hennar, Della Shaker, sagði í yfirlýsingu við Page Six að ásakanirnar veki upp víðtækari áhyggjur af meðferð heimilishjálpar sem auðugir einstaklingar ráða.
„Þetta mál vekur upp stærri spurningu: hversu margir heimilisstarfsmenn eru hræddir við að tilkynna ólöglega meðferð vegna þess að þeir telja að vinnuveitendur þeirra séu of valdamiklir til að kæra?“ sagði Shaker. „Sannleikurinn ætti aldrei að vera falinn á bak við auð, ótta eða þögn. Enginn ætti að óttast að segja sannleikann.“
Lögmaður Jenner, Michael Rhodes, sagði í yfirlýsingu: „Þessi nýjustu mál eru höfðuð af sama lögmanni sem áður lagði fram kröfur fyrir hönd fyrrverandi starfsfólks Kylie. Það er ljóst að þessi lögmaður vill nota umfjöllun til að reyna að fá útborgaðar launagreiðslur. Við ætlum ekki að láta hræða okkur til að gera það. Þess vegna munum við verja þessi órökstuddu mál af krafti og hlökkum til að segja okkar hlið á sögunni.“
Nýjasta málsóknin er sú fjórða á þessu ári sem fyrrverandi heimilisstarfsmaður hefur höfðað gegn Jenner eða fyrirtækjum hennar.
Þann 17. apríl höfðaði fyrrverandi ráðskona, Angelica Hernandez Vasquez, mál gegn Jenner og fyrirtækjum hennar og hélt því fram að hún hefði orðið fyrir áreitni og mismunun vegna uppruna síns í El Salvador, kaþólskrar trúar og innflytjendastöðu. Vasquez hélt því fram að hún hefði verið gerð að athlægi fyrir hreim sinn, auðmýkt af samstarfsmönnum sínum og neydd til að vinna óæskileg verkefni á heimili Jenner. Hún hélt því einnig fram að kvörtunum hennar hefði ekki verið svarað og að yfirmaður hefði einu sinni kastað herðatrjám að henni.
Málið er fyrir dómstóli og lögmenn beggja aðila tóku þátt í sáttaumleitunum í október og báðu um frest fyrir Jenner og hina sakborningana til að svara breyttri kæru.
Tveimum vikum eftir að Vasquez höfðaði mál sitt höfðaði önnur fyrrverandi húshjálp, Juana Delgado Soto, mál gegn Jenner og fyrirtækjum hennar þann 29. apríl og sakaði þau um mismunun , áreitni og hefnd. Soto hélt því fram að henni hefði verið bannað að horfa á eða brosa til Jenner og að hún hefði verið neydd til að fela sig á baðherbergi eða í bílskúr í marga klukkutíma í hvert skipti sem Jenner var heima. Hún hélt því einnig fram að henni hafi verið meinaður aðgangur að drykkjarvatni og salerni og að henni hefði verið misþyrmt eftir andlát bróður síns.
Samkvæmt dómsskjölum tóku báðir aðilar þátt í sáttaumleitunum í október en lögmenn Jenner og annarra óskuðu eftir lengri tíma til að svara málsókninni, sá var samþykktur til 20. nóvember.
Ónefndur kokkur sagðist hafa misst fóstur eftir langan vinnudag
Þann 22. júní höfðaði fyrrverandi einkakokkur, sem í dómsskjölum var nafngreindur sem Jane Doe, mál gegn Jenner og nokkrum meðlimum teymis hennar fyrir mismunun vegna meðgöngu og þungunarmissis. Kokkurinn hélt því fram að hún hefði misst fóstur eftir að hafa þurft að vinna líkamlega krefjandi vaktir þrátt fyrir að vera með meðgöngueitrun.
Sagðist hún hafa þurft að vinna langan vinnudag í afmælisveislu fjölskyldunnar í Palm Springs í Kaliforníu áður en hún vaknaði morguninn eftir með miklar blæðingar og komst að því á sjúkrahúsinu að hún hefði misst fóstrið. Kokkurinn sakaði einnig teymi Jenner um að hafa farið illa með hana eftir fósturmissinn og að lokum sagt henni upp störfum.
Jenner og fyrirtæki hennar hafa andmælt beiðni fyrrverandi kokksins um að vera nafnlaus og fyrir dómi í október krafðist lögfræðiteymi Jenner þess að dómarinn upplýsti hver konan væri. Fyrirtaka um notkun dulnefnis kokksins er áætluð 28. janúar 2027, en sérstakur málsmeðferðarfundur er áætlaður 25. janúar.
Allar fjórar konurnar eru skjólstæðingar Shaker og í nokkrum málaferlunum eru sömu fyrirtæki og yfirmenn nefndir meðal varnaraðila. Ásakanirnar í málaferlunum hafa ekki verið sannaðar fyrir dómi.