Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul hefur verið einhleyp og skírlíf síðustu tíu mánuði að eigin sögn.
Taylor sló fyrst í gegn á TikTok og síðar í raunveruleikaþáttunum The Secret Lives of Mormon Wives, sem, eins og nafnið gefur til kynna, fjalla um mormónakonur í Utah í Bandaríkjunum og líf þeirra.
Hún hefur verið í hringiðu skandals og drama undanfarið vegna ásakana fyrrverandi kærasta hennar um heimilisofbeldi. Ásakanir gengu á víxl og fékk hann tímabundið forræði yfir syni þeirra í vor.
Taylor átti að vera næsta Bachelorette en nokkrum dögum áður en fyrsti þáttur átti að fara í loftið hætti ABC við vegna ásakananna. Áhorfendur The Secret Lives of Mormon Wives hafa fengið að fylgjast með ástarmálum Taylor í nokkur ár og hefur það verið ákveðið þema hjá henni að vera sífellt við karlmann kennd. Það hefur því komið mörgum á óvart, sérstaklega Taylor sjálfri, að hún hefur verið einhleyp undanfarna tíu mánuði.
Hún greindi frá því á samfélagsmiðlum fyrir stuttu.
„Ég er í sjokki yfir því að ég hef verið einhleyp og skírlíf síðustu tíu mánuði, sem hafa verið þeir einmanalegustu á ævi minni, en ætli það séu ekki framfarir,“ skrifaði hún og bætti við:
„Þetta hefur verið lærdómsríkt ár, að læra að líða vel ein með sjálfri mér.“