fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Fókus

Dóttir leikarans fannst látin 34 ára að aldri

Fókus
Föstudaginn 2. janúar 2026 08:30

Victoria með föður sínum árið 2017. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóttir bandaríska stórleikarans Tommy Lee Jones, hin 34 ára gamla Victoria Jones, fannst látin inni á hótelherbergi sínu í San Francisco aðfaranótt nýársdags.

Í frétt TMZ kemur fram að óskað hafi verið aðstoð lögreglu klukkan 3:14 í fyrrinótt. Endurlífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var Victoria úrskurðuð látin skömmu síðar. Dánarorsök liggur ekki fyrir.

Victoria var leikkona á sínum yngri árum og lék hún til að mynda við hlið föður síns í bíómyndinni Men in Black II. Þá lék hún einnig hlutverk í sjónvarpsþáttunum One Tree Hill og kvikmyndinni The Three Burials of Melquiades Estrada.

New York Post segir frá því að Victoria hafi komist í kast við lögin í þrígang á árinu sem var að líða, þar á meðal vegna vörslu fíknefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lífsreynslusaga Gyrðis sú mest selda í maí

Lífsreynslusaga Gyrðis sú mest selda í maí
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segist hafa „eyðilagt“ sjálfan sig í leit að hinum fullkomna líkama: „Ég er næstum því lamaður“

Segist hafa „eyðilagt“ sjálfan sig í leit að hinum fullkomna líkama: „Ég er næstum því lamaður“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Guðrún og Sigurður selja í Gnoðarvogi – „Ég held að ég sé íhaldssöm“

Guðrún og Sigurður selja í Gnoðarvogi – „Ég held að ég sé íhaldssöm“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lokuðu Instagram reikningi þekktasta áhrifavalds Bretlands – Sökuð um að flassa brjóstunum

Lokuðu Instagram reikningi þekktasta áhrifavalds Bretlands – Sökuð um að flassa brjóstunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ótrúleg breyting á Jóni Pétri – Sjáðu hvað hann hefur lést mikið

Ótrúleg breyting á Jóni Pétri – Sjáðu hvað hann hefur lést mikið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kara byrjaði í neyslu í 9. bekk eftir grimmt einelti: „Ef ég myndi ekki drepa mig myndu þau gera það“

Kara byrjaði í neyslu í 9. bekk eftir grimmt einelti: „Ef ég myndi ekki drepa mig myndu þau gera það“