fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Fókus
Sunnudaginn 7. júní 2026 10:30

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur dregið úr umsvifum á íslenskum fasteignamarkaði upp á síðkastið og töluvert er um að verð íbúða lækki í söluferli. Á meðan markaðurinn er rólegur þá bíða margir þess færis að láta draum sinn rætast um að eignast einbýlishús.

Ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag kosta á bilinu 11 til 30 milljónir króna, hér má sjá yfirlit yfir þau ódýrustu. Hafa ber í huga að flest húsin þurfa á laghentum eiganda að halda.

 

Fjarðarvegur, Þórshöfn

Stærð: 83 fermetrar

Byggingarár: 1956

Verð: 10,8 milljónir

Ódýrsta einbýlishúsið á Íslandi í dag er fjögurra herbergja og staðsett á Þórshöfn. Tekið er fram að við sjónskoðun sé ljóst að eignin þurfi viðhald og ekki sé vitað um ástand vatns, fráveitu og raflagna.

Sjá nánar

 

Hafnarbyggð, Vopnafirði

Stærð: 92 fermetrar

Byggingarár: 1946

Verð: 16,8 milljónir

Húsinu er lýst sem þægilegt einnar hæðar einbýli sem leyni á sér hvað stærð varðar. Tekið er fram að umhverfi hússins sé fallegt og sjórinn handan götunnar. Rúmgott eldhús og fjögur svefnherbergi.

Sjá nánar

 

Snæfellsás, Hellissandi

Stærð: 97 fermetrar

Byggingarár: 1930

Verð: 19,8 milljónir

Tveggja hæða hús á stórri lóð, sérinngangur í kjallara að aftan. Þrjú svefnherbergi. Tekið er fram að húsið gæti hentað vel sem sumarhús.

Sjá nánar

 

Aðalgata, Sauðárkróki

Stærð: 155 fermetrar

Byggingarár: 1897

Verð: 15 milljónir

Tveggja hæða hús í miðbæ Sauðárkróks. Það þarfnast verulegs viðhalds en þakið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þar sem húsið er svo gamalt þá má ekki raska því nema með leyfi Minjastofnunar en það má halda því við og mála.

Sjá nánar

 

Hafnargata, Bakkafirði

Stærð: 91 fermetrar

Byggingarár: 1990

Verð: 14,9 milljónir

Húsið var áður pósthúsið í bænum en er núna tvær íbúðir, ein 64 fermetra og með möguleika á annarri 28 fermetra, salerni í báðum rýmum. Stórt steypt bílastæði fyrir utan,

Sjá nánar

 

Lindargata, Sauðárkróki

Stærð: 71 fermetri

Byggingarár: 1954

Verð: 22 milljónir

Húsið skiptist í tvö herbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og forstofu, tekið er fram að forstofan lekur. Nýrri hluti hússins var byggður 1970, þak á þeim hluta var endurnýjað 2024.

Sjá nánar

 

Bjarg, Bakkafirði

Stærð: 115 fermetrar

Byggingarár: 1908

Verð: 24,9 milljónir

Endurbætt fjögurra svefnherbergja einbýlishús með 2,5 hektara landi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Húsið hefur verið notað sem gistiheimili síðustu fjögur sumur. Gæti hentað fyrir fjölskyldu, sem sumarhús eða áfram sem gistiheimili.

Sjá nánar

 

Krækishólar, Selfossi

Stærð: 22 fermetrar

Byggingarár: 2023

Verð: 21,9 milljónir

Yngsta húsið á listanum. Gestahús á 6.951 fermetra eignarlóð í rúmlega 15 mínútna akstri frá Selfossi þar sem á að verða íbúðahverfi. Búið er að tengja kalt vatn og rafmagn. Leyfilegt er að byggja allt að 340 fermetra á lóðinni.

Sjá nánar

 

Boðagerði, Kópasker

Stærð: 113 fermetrar

Byggingarár: 1977

Verð: 24,9 milljónir

Vel staðsett við sjávarsíðuna á Kópaskeri. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsluskúr í garði. Þakið var endurbætt 2003.

Sjá nánar

 

Tjarnarholt, Raufarhöfn

Stærð: 132 fermetrar

Byggingarár: 1976

Verð: 27 milljónir

Húsið var byggt 1976 og telur 109,9 fermetra að viðbættum 22,4 fermetrum, var allt endurnýjað innanvert fyrir einum 8 árum, gólfefni, innréttingar og innihurðar. Fyrir tveimur árum var húsið klætt að utan.

Sjá nánar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur
Fókus
Fyrir 1 viku

Celebrating George Michael kemur til Íslands

Celebrating George Michael kemur til Íslands