fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Spar og FH í samstarf

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 6. júní 2026 08:59

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH, og Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri SPAR fagna samstarfinu ásamt handknattleiksfólki úr FH.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunarkeðjan SPAR er nýr aðalsamstarfsaðili handknattleiksdeildar FH til næstu þriggja ára. Um er að ræða fyrsta styrktarsamning SPAR hér á landi og birtist vörumerkið meðal annars á öllum keppnisbúningum meistaraflokka og yngri flokka félagsins. Kemur þetta fram í tilkynningu

Spar er ný alþjóðleg smásölukeðja á Íslandi. Fyrstu SPAR verslanirnar verða opnaðar formlega laugardaginn 6. júní í Staðarbergi í Hafnarfirði, þar sem Krambúðin var áður, og á Barónsstíg, þar sem Extra var áður. Verslanirnar hafa verið endurnýjaðar og opna nú undir hinu alþjóðlega vörumerki SPAR. Markar það upphaf umfangsmikillar uppbyggingar vörumerkisins hér á landi.  Á næstu tveimur árum verður verslunum Krambúðar, Kjörbúðar og 10–11 einnig breytt í SPAR verslanir.

„Það er okkar ánægja að hefja samstarf við FH. Samstarfið byggir á sameiginlegum gildum um heilsu, hreyfingu og öflugt samfélag en SPAR International hefur í áratugi verið þátttakandi í samfélagsverkefnum og stutt við afreks- og íþróttastarf.  Við erum sannfærð um að þetta eigi eftir að verða farsælt samstarf. Fyrstu verslanir SPAR á Íslandi opna á næstu dögum og viðeigandi að sú fyrsta sé á besta stað í Hafnarfirði, nálægt FH. Samstarfið við þessa öflugu alþjóðlegu verslunarkeðju er stórt skref fyrir Samkaup, dótturfélag Dranga, og mun styrkja bæði vöruúrval og upplifun viðskiptavina okkar, auk þess sem við getum lækkað verð,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga.

„Það að fá SPAR til liðs við okkur er gríðarlega mikilvægt fyrir áframhaldandi vöxt handknattleiksdeildar FH og við erum stolt af samstarfi við fyrirtæki sem deilir með okkur sýn um heilbrigði, samfélagsábyrgð og mikilvægi íþróttastarfs,” sagði Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH, við undirritunina.  „FH og SPAR leggja bæði áherslu á fagmennsku, árangur og framúrskarandi þjónustu og því er óhætt að segja að samstarfið hitti í beint mark,” bætti Ágúst Bjarni við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar