fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Vildu ekki vera saman á myndum á Golden Globes – Ástæðan er einföld

Fókus
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 09:30

Jennifer Garner og Jennifer Lopez

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonurnar Jennifer Garner og Jennifer Lopez voru mættar á Golden Globes verðlaunahátiðina á sunnudag. Þær eiga leikarann Ben Affleck sameiginlegan sem fyrrverandi eiginmann, en vildu ekki stilla sér saman á myndum á hátíðinni þrátt fyrir að „engin dramatík“ sé á milli þeirra tveggja.

„Leikkonurnar eru „vingjarnlegar hvor við aðra,“ sagði heimildarmaður við Daily Mail. „Þeim kemur vel saman, þær eru flottar hvor við aðra, það eru engin vandamál.“

Heimildarmaðurinn bætti við: „Þær vilja ekki skapa fyrirsagnir með því að stilla sér upp saman á verðlaunahátíð; það væri vandræðalegt. Þær vilja ekki skapa læti því það væri erfitt fyrir börnin.“

Lopez á 17 ára tvíburana Max og Emme með Marc Anthony og Garner á dæturnar Violet, 20 ára og Seraphina, 17 ára, og soninn Samuel, 13 ára, með Affleck. Lopez og Garner sjást oft saman þar sem dæturnar Emme og Seraphina eru sérstaklega nánar.

„Ég er nokkuð viss um að þær hittast minnst einu sinni í viku vegna barnanna og þær tala saman í síma, þær eru á vissan hátt sameiginlegir foreldrar, jafnvel þótt Lopez hafi skilið við Ben,“ sagði heimildarmaðurinn við Daily Mail.

Lopez hefur sést nokkrum sinnum á ferðinni með syni Affleck og Garner, Samuel, og elstu dóttur þeirra, Violet, síðan hún skildi við leikarann.

„Þau eru eins og ein stór nútímafjölskylda, sem er fínt. Þau hafa öll verið í góðri meðferð og skilja mikilvægi þess að koma vel saman fyrir barnanna sakir,“ fullyrti heimildarmaðurinn. „Garner er líka mjög flott í öllu; hún er ekkert fyrir drama, svo það var engin leið að það yrði nokkurn tímann eitthvað skrýtið. Hún er ljúfasta manneskjan í Hollywood.“

Affleck og Garner voru gift frá 2005 til 2018. Garner hefur verið í sambandi við John Miller af og til síðan 2018. Affleck og Lopez voru gift frá 2022 til 2025. Þau gengu frá skilnaði í janúar 2025.

Þrátt fyrir aðskilnaðinn hafa þau verið hamingjusöm fjölskylda, öll saman.

Í síðasta mánuði sást Lopez versla fyrir jólin með Affleck og syninum Samuel í Brentwood Country Mart í Los Angeles.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu