fbpx
Laugardagur 17.janúar 2026
Fókus

Kötturinn og ég – Falleg og persónuleg þroskasaga

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 4. desember 2025 11:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndasagan, Kötturinn og ég, er þroskasaga stúlku sem er sögð í gegnum samskipti hennar við kisu. Hún fjallar um hvernig lítil fyndin kisa getur átt sess í fjölskyldu og haft áhrif á líðan og þroska allra fjölskyldumeðlima.

Saga fyrir þá sem sakna kisu.

Höfundurinn, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, lærði myndlist í Flórens á Ítalíu og síðan teiknimyndagerð í Bretlandi. Hún hefur teiknað nokkrar barnabækur en þetta er fyrsta bókin sem er algerlega hennar höfundarverk.

Bókin Kötturinn og ég er sannkallað gleðiefni fyrir unnendur teiknimyndasagna. Í Bókatíðindum ársins er aðeins getið um sex slíkar útgefnar á árinu og þetta er önnur tveggja eftir íslenskan höfund.

Bókin segir frá ungri stúlku sem rekst á kettling á förnum vegi, kisi eltir hana heim og eftir helgardvöl hjá föður sínum fer stúlkan með kisa heim og nær að blíðka móður sína til að leyfa honum að vera. Fyrr en varir er kisi orðinn einn af fjölskyldunni hjá þeim mæðgum með öllum sínum kostum og kenjum. Sagan segir frá mörgum skemmtilegum atvikum sem flestir ef ekki allir kattaeigendur ættu að tengja við.

Bókin er falleg og persónuleg þroskasaga stúlku og kattar, heillandi saga um vináttu og samband manneskju og gæludýrs.

Að mínu mati myndi sagan einnig geta nýst í styttri útgáfu með færri myndum fyrir yngri lesendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Linda Pé segir þetta lykilinn að varanlegum árangri – „Aðferðin sem þú hefur verið að nota fram til þessa virkar ekki“

Linda Pé segir þetta lykilinn að varanlegum árangri – „Aðferðin sem þú hefur verið að nota fram til þessa virkar ekki“
Fókus
Í gær

Myndin svo mikið unnin að fólk hélt hún væri rúmlega 40 árum yngri

Myndin svo mikið unnin að fólk hélt hún væri rúmlega 40 árum yngri
Fókus
Fyrir 4 dögum

Össi bauð Thelmu á fyrsta stefnumótið og steinsofnaði – ,,Svo var hann líka í öfugum bol og sitt hvorum sokknum”

Össi bauð Thelmu á fyrsta stefnumótið og steinsofnaði – ,,Svo var hann líka í öfugum bol og sitt hvorum sokknum”
Fókus
Fyrir 4 dögum

Musk ætlar að krefjast fullrar forsjár sonar síns vegna afsökunarbeiðni barnsmóðurinnar

Musk ætlar að krefjast fullrar forsjár sonar síns vegna afsökunarbeiðni barnsmóðurinnar