fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 17:30

1 evra slegin í Austurríki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvittanir og tyggjóumbúðir eiga það til að enda á botninum í töskunum okkar og það sama á við um klink. En ef þú hefur verið í fríi á meginlandi Evrópu og notað evrur og komið heim með eitthvað af evruklinki, þá ættirðu að kíkja á það.

Ástæðan er að ákveðnar tegundir evrumynta eru mjög verðmætar. Það er mjög virkur hópur sem safnar sjaldgæfum útgáfum af evrum og eru margir þeirra reiðubúnir til að greiða hátt verð fyrir sjaldgæfa mynt. Þetta getur verið mynt sem einhver mistök voru gerð við í myntsláttunni eða sérútgáfur.

Eitt besta dæmið um verðmæta evrumynt er frá Mónakó. Þar var sérstök mynt til heiðurs Grace Kelly slegin í aðeins 20.000 eintökum 2007. Safnarar greiða allt að 30.000 evrum fyrir eina slíka mynt.

Annað dæmi er mynt sem var slegin fyrir Litáen 2021. Hún er tileinkuð náttúruverndarsvæðinu Zuvintas. Mjög óvenjulegur kantstimpill er á nokkrum af myntunum og þess vegna eru safnarar reiðubúnir til að greiða allt að 20.000 evrur fyrir hana.

Nú er bara að kíkja í skúffur og buddur og skoða evrurnar vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Hundurinn þinn líkist þér miklu meira en þú heldur (og það er engin tilviljun)

Hundurinn þinn líkist þér miklu meira en þú heldur (og það er engin tilviljun)
Pressan
Fyrir 2 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heimilishjálp á Kanaríeyjum stal skartgripum af fjölskyldu fyrir vel á aðra milljón króna

Heimilishjálp á Kanaríeyjum stal skartgripum af fjölskyldu fyrir vel á aðra milljón króna