fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Handtökuskipun gefin út á hendur Katie Price

Fókus
Miðvikudaginn 31. júlí 2024 14:29

Katie Price. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur bresku glamúrfyrirsætunnar Katie Price eftir að hún mætti ekki í dómsal þar sem taka átti fyrir úrskurð um gjaldþrot hennar. Hún er stödd í Tyrklandi til að gangast undir enn aðra fegrunaraðgerðina.

Hún skuldar yfir 133 milljónir króna, eða 750 þúsund pund. Katie, 46 ára, segist hvorki skammast sín né líða vandræðalega vegna málsins. DailyMail greinir frá.

Price átti að svara spurningum dómara í London varðandi fjárhagsstöðu hennar og gjaldþrot. Henni hefur verið skipað að láta af hendi bleika Range Rover jeppann sinn og fimm aðrar bifreiðar.

Málið hefur vakið mikla athygli og eftir að handtökuskipunin var gefin út tjáði fyrirsætan sig um málið á Instagram.

Skjáskot/Instagram

Price sagðist ekki vera á landinu þar sem hún væri erlendis að vinna í heimildarmynd um fegrunaraðgerðir. Hún sagði einnig að hún væri ekki að „hlaupa frá skyldum“ sínum og að hún væri „meðvituð um alvarlegt ástand fjárhagsstöðu“ hennar.

Dómarinn sagði afsökun Price ekki vera gilda og að hún hafi vitað hversu mikilvægt það hafi verið fyrir hana að mæta. Dómarinn sagði einnig að Price hafi ekki veitt ýmsar nauðsynlegar upplýsingar fyrir gjaldþrotaskiptin.

Price var úrskurðuð gjaldþrota í nóvember 2019 og aftur í mars 2024. Henni var síðan skipað að yfirgefa heimili sitt í Sussex, sem var kallað „Mucky Mansion“, í vor.

Price birti þessa mynd daginn sem hún átti að mæta fyrir dóm.

Glamúrfyrirsætan átti að mæta fyrir dómi í gær en var þess í stað í flugvél á leið til Tyrklands til að gangast undir enn aðra fegrunaraðgerðina. Hún birti mynd af samloku sem hún var að borða í flugvélinni á Instagram, en eyddi henni stuttu síðar.

Price þvertekur fyrir að hafa verið að svíkjast undan og segir að hún hafi verið búin að láta vita að hún væri ekki nógu sterk andlega og að hún myndi ekki mæta í persónu í dómssal.

„Ég er að taka gjaldþrotinu alvarlega. Það er ekki eins og ég fór í eitthvað fimm stjörnu frí, ég er ekki á rándýru hóteli,“ segir  hún.

Þetta er í þriðja skipti sem Price mætir ekki í dómsal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum