Poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson gekk í það heilaga í gær með kærasta sínum Edgar Antonio Lucena Angarita.
Frá þessum gleðitíðindum greinir Páll Óskar frá í hjartnæmri færslu á Facebook-síðu sinni.
„Við turtildúfurnar giftum okkur heima í stofu kl. 10.00 í gærmorgun 27. mars. Besti dagur lífs okkar, fullur af ást og skilyrðislausum kærleika Takk Brynhildur vinkona og athafnastjóri hjá Siðmennt fyrir að massa þetta með okkur. Við munum endurtaka þetta síðar með öllum sem við þekkjum í risabrúðkaupsveislu,“ skrifar Páll Óskar og beinir svo orðum sínum að eiginmanni sínum.
„Takk, Edgar Antonio Lucena Angarita, ástin í lífi mínu og núna maðurinn minn. Allir sem þekkja mig segja það sama: þau hafa aldrei séð mig svona hamingjusaman í lífinu. Ég ætla að vera besti eiginmaður í heimi, og ákkurat þegar þú heldur að ég geti ekki orðið betri fyrir þig, þá mun ég halda áfram að koma þér á óvart, bæta mig meira og verða bara betri. Cada día es un Aventura! Ég elska þig. Þinn, Palli.“