fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Var hann djöfullinn sjálfur sem kallaði elda og ömurð yfir heimili? – Bölvun ,,Drengsins með tárið“

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Laugardaginn 10. september 2022 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir eldri en tvævetra muna vel eftir ,,Drengnum með tárið” sem oftar en ekki skreytti heimili ömmu og afa fyrir um fjörutíu til fimmtíu árum síðan.

Átakanleg sorg drengsins greip fólk og seldust eftirprentanir í tonnavís.

Költ

 ,,Drengurinn” var einnig vinsæll til útsauma og talin með snúnari verkefnum, jafnvel fyrir reyndustu útsaumara, sem kepptust hver við annan um að ná sem bestum árangri.

Myndin hlaut með árunum ákveðna ,,költ” stöðu í samfélaginu enda fátt talið minna jafn rækilega á hallærisheit sjöunda, áttunda og jafnvel níunda áratugarins.

En hvaðan kom myndin? Er um raunverulegan dreng að ræða eða hugarflug listamannsins? Hver málaði myndina?

Og síðast en ekki síst: Er bölvun á myndinni eins og margir vilja trúa?

Málarinn

Myndin er merkt Giovanni Bragolin en í raun var hún málið af spænskum listamanni, Bruno Amadio, um miðja tuttugustu öldina. Amadio þessi sérhæfði sig í að mála grátandi börn og urðu verkin alls um tuttugu, sum vinsælli en önnur.

Bruno Amadio.

Sjálfur kallaði Amdadio verkin ,,Sígaunabörnin“ sem verður þó að teljast vafasamt enda börnin ekki með vott af af litarhafti Rómafólks og reyndar flest ljóshærð. Amadio málaði önnur portrett verk, sem næstum öll sýna þó sorg, eymd og þjáningu.

Að ógleymdri æsku enda voru næstum öll viðfangsefni málarans börn.

Hjá því varð ekki komist að fólk færi að spyrja sig hvar Amadio finndi öll þessi óhamingjusömu börn. Orðrómur fór af stað um að málarinn hræddi viðfangsefni sín til að ná fram ótta en aðrir gengu lengra og pískrað var um meinta misnotkun málarans á börnum.

Á veggjum góðborgara

Þessi ákveðni drengur sló sérstaklega í gegn og frá upphafi sjöunda áratugarins og fram á hinn níunda var drengurinn með tárið uppi á veggjum annars hvers góðborgara í Evrópu.

Úr seríu hinna grátandi barna.

Sjálfur sagði Amadio drenginn vera munaðarleysingja, sígaunabarn sem hann hefði rekist á á götum Madrid á sjötta áratugnum. Sagði hann hungur barnsins og svengd hafa gripið sig heljartökum og því hafi hann beðið drenginn um að sitja kyrran á meðan að hann teiknaði hann. Amadio sagðist hafa verið byrjaður að munda blýantinn þegar að kaþólskur prestur kom að og varaði hann við.

Úr seríu hinna grátandi barna.

Djöfullinn

Sagði presturinn drenginn heita Don Bonillo og hefði hann misst foreldra sína í eldsvoða sem átti sér grunsamleg upptök. Ekki nóg með það, heldur sagði presturinn eldsvoða fylgja drengnum hvert sem hann færi. Ástandið væri það slæmt að barnið væri kallað ,,Diablo” eða djöfullinn og það væri hverjum manni hollast að forðast drenginn.

Amadio sagðist hafa hunsað orð prestsins og þess í stað tekið drenginn heim með sér. Varð hann þar með upphafið að seríu hinna grátandi barna.

En Amadio var ekki lengi í paradís því að ekki leið á löngu þar til kviknaði í húsi málarans og brann allt sem brunnið gat. Málarinn kvaðs hafa munaða varnaðarorð prestsins og hent Don Bonillo á dyr. Hann átti aldrei eftir að hitta hann framar. Til að bæta gráu ofan á svart byrjaði að dreifast orðrómur um að drengurinn hefði lagt bölvun á Amadio og komu kaupendur því ekki nálægt verkum hans.

Úr seríu hinna grátandi barna.

Í ofanálag kom lögregla í Barcelona að bíl í ljósum logum árið 1976 og var ökumaðurinn of brenndur til að unnt væri að bera kennsl á hann. Hann var einn í bílnum. Aftur á móti höfðu varðveist skjöl í hanskahólfi bílsins og var eigandi bílsins skráður enginn annar en Don Bonillo. Eða svo sagði Amadio.

Þetta gat varla talist tilviljun?

Hvort sagan var einhvers konar markaðsbrella Amadio eða upruninn annars staðar frá munum við sennilega aldrei vita þar sem málarinn lést árið 1981 og er merkilega lítið vitað um hann í raun og sann.

Breska pressan kemst í feitt

Árið 1985 kviknaði í á heimili Hall hjónanna í Rotherham í Englandi. Heimili þeirra, innbú og eigur gjöreyðilögðust nema málverkið af drengnum með tárið en ekki sá á myndinni. Kom hún alheil úr eldhafinu. Það þótti sannað að eldurinn hefði átt upptök sín í djúpsteikingarpotti en hjónin voru þess fullviss um að málverkinu væru um að kenna og fóru til fjölmiðla með kenningu sína. Gula pressan í Bretlandi tók kenningunni fagnandi og dagblaðið The Sun setti hjónin og frásögn þeirra á forsíðu.

Daginn eftir hafði kona að nafni Dora Mann samband og sagði hús sitt hafa brunnið til grunna hálfu ári eftir kaupin á verkinu og hefði það verið óskemmt í rústunum. Annar lesandi sagði son sinn hafa slasast á kynfærum eftir kaup á málverkinu og þriðja konan sagði eiginmann sinn og þrjá synir hafa látist eftir kaup á drengnum með tárið.

Áður en varði hrúguðust inn sambærilegar sögur um óútskýrða elda þar sem ekkert hafði bjargast nema jú myndin af drengnum með tárið.

Þeir sem höfðu fyrir því að kanna málin betur voru snöggir að átta sig á að allir höfðu eldsvoðarnir átt sér mun eðlilegri og meira óspennandi upptök og að sögur af málverkinu óbrennandi voru í flestum tilfellum vel ýktar. Það breytti þó ekki þvi að jafnvel slökkviliðsmenn voru efins og sóru margir fyrir að hafa vaðið inn í brennandi hús til þess eins að finna drenginn með tárið óskemmdan í eldhafinu.

Brennan

Svo fór þó að yfirvöld slökkviliðsmála í Bretlandi sáu sig tilneydd til að gefa út yfirlýsingu um að drengurinn með tárin hefiði aldrei, og ekki undir neinum kringumstæðum, verið valdur að bruna.

En The Sun var í stuði og bauð lesendum sínum að senda eintök sín af drengnum á ritstjórn blaðsins. Áður en varði fylltust skrifstofur blaðsins og sátu forsvarsmenn blaðsins uppi með 2500 eintök af verkinu. Á hrekkjavöku sama ár auglýsti blaðið brennu við Thames á þar sem kveikt skyldi í verkunum í þeim tilgangi að losna við bölvun verksins.

Aldrei að vita

Áhuginn á drengnum með tárið minnkaði mjög í kjölfarið en pískrið um bölvunina hvarf þó aldrei alveg.

Og með internetinu hljóp aftur fjör í söguna svo úr varð nútíma þjóðsaga sem reglulega er endurtekin í heimildamyndum og á YouTube rásum sem sérhæfa sig í hinu yfirnáttúrulega.

Sé tekin létt yfirferð á spjallþráðum netsins nú í september 2022 má sjá að óháð fagurfræðilegu gildi verksins eru margir sem kjósa að hafa verkið ekki uppi á veggjum heimilis síns.

Það sakar jú ekki að sýna fyllstu aðgát. Það er aldrei að vita.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur
Fókus
Fyrir 1 viku

Celebrating George Michael kemur til Íslands

Celebrating George Michael kemur til Íslands