fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Óhugnanlegar lýsingar íslenskrar konu á spilafíkn barnsföður hennar – Skildi 3 ára soninn einan eftir út í bíl

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 18. febrúar 2021 12:30

Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég áttaði mig sem betur snemma á því á meðgöngunni að barnsfaðir minn væri spilafíkill. Þá tók ég ákvörðun að frekar yrði ég einstæð móðir en að basla alla ævi með spilafíkli,“ segir kona sem á ungan dreng með spilafíkli. 

Saga hennar birtist á lokum.is. Samtök áhugafólks um spilafíkn standa að baki átakinu „Lokum spilakössum“ eða lokum.is. Á síðunni er hægt að lesa fleiri sögur.

Konan, sem kemur fram nafnlaus en er kölluð Erla í greininni, segir frá því að hún hafi snemma tekið eftir munstri hjá barnsföður sínum sem benti sterklega til spilafíknar. Barnsfaðir hennar býr í öðru sveitarfélagi og fór drengurinn mjög ungur reglulega til hans.

„Hann sagðist ætla að koma á ákveðnum tíma á föstudegi að sækja drenginn. Drengurinn beið og beið, stundum fram á kvöld, eftir að pabbi hans myndi koma að sækja hann. Við reyndum að hringja og athuga með hann en alltaf fengum við sama svarið: „Ég þarf aðeins að útrétta“. Ég vissi að hann hékk í spilakössunum í Reykjavík,“ segir Erla, en til þess að komast til hennar þurfti maðurinn að keyra í gegnum Reykjavík.

Með tímanum var hún farin að sjá hvort hann hefði unnið eða tapað í spilakassanum. Það sást á skapinu hans. Ef hann vann fóru feðgarnir á KFC og í bíó, en ef hann tapaði fóru þeir beint heim.

Einn í myrkrinu

Erla vissi lítið um spilafíkn barnsföðurins, þar til sonur hennar sagði henni frá því hvernig lífið væri með föður sínum. Minningarnar voru ekki erfiðar og var ein sérstaklega hrollvekjandi.

„Hann sagði mér að hann sofnaði alltaf í bílnum á leiðinni suður og að pabbi hans hafi alltaf stoppað á ákveðnum stað til að spila í spilakössunum. Hann vakti hann til að taka hann með sér inn þar sem hann mátti hanga ungur að árum inni í einhverri sjoppu með bland í poka á meðan pabbi hans spilaði í spilakassanum […] Í eitt skiptið þegar hann var þriggja ára vaknaði hann í bílstólnum. Það var myrkur úti og hann varð gríðarlega hræddur því enginn var með honum í bílnum. Hann segist hafa horft í kringum sig út um gluggann, sá þessa sjoppu og hugsaði: Pabbi er örugglega inni í sjoppunni. Hann reyndi að losa sig úr beltinu en ekkert gekk. Hann varð hræddari og hræddari og var farinn að gráta yfir því að vera einn og fastur í stólnum sínum. Allt í einu var bankað létt á bílgluggann og hurðin opnuð. Þar stóð maður sem spurði hvað væri að því hann væri búinn að heyra hann gráta í smá tíma og vildi athuga með hann. Það endaði með því að þessi ókunnugi og trausti maður sem betur fer hjálpaði honum úr stólnum og leiddi hann inn í sjoppuna. Þar sá drengurinn pabba sinn standandi fyrir framan einn spilakassann og kallaði á hann. Ókunnugi maðurinn sagði eitthvað við barnsföður minn, sem sonur minn man ekki hvað var, og þá svaraði hann því til að strákurinn væri vanur að sofa út í eitt,“ segir Erla á lokum.is.

Það kom einnig nokkrum sinnum fyrir að barnsfaðir hennar hafi sagt syni þeirra að hann ætlaði að fara að versla í matinn, en hafi ekki skilað sér heim fyrr en fimm tímum seinna. Á meðan var drengurinn einn heima að bíða eftir föður sínum. Það tók tíma fyrir son hennar að vera tilbúinn að opna sig um þetta, en hann óttaðist að ef hann myndi segja móður sinni sannleikann þá fengi hann ekki lengur að hitta föður sinn.

Í dag á barnsfaðir Erlu ekkert vegna spilafíknar. Hann hefur stundað spilakassa hátt í 30 ár og segist Erla vera handviss um að hann ætti 70 til 80 milljóna skuldlausa eign og bifreið ef hann hefði aldrei snert spilakassa.

„Ég er þakklát í dag að hafa fattað það strax er ég kynntist honum að líf með spilafíkli væri ávísun á fátækt og lygi. Drengurinn er meðvitaður í dag um að pabbi hans spili í spilakössum og sé spilafíkill. Drengurinn hefur margoft sagt að hann muni aldrei setja pening í spilakassa því hann vill ekki vera fátækur.“

Þú getur lesið fleiri sögur inn á lokum.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“