Einkaþjálfarinn Kristbjörg Jónasdóttir og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hafa gefið syni sínum nafnið Alexander Malmquist Aronsson.
Bæði Aron og Kristbjörg hafa greint frá þessu á Instagram-síðum sínum.
Alexander fæddist aðfaranótt fyrsta október, en hann er þriðja barn þeirra Arons og Kristbjargar. Fyrir eiga þau þá Óliver og Tristan.
View this post on Instagram
View this post on Instagram