fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Fyndin og frekar hreinskilin lýsing á stjörnumerkjunum – MEYJAN

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 6. desember 2018 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höldum áfram með skemmtilegar og frekar hreinskilnar lýsingar á stjörnumerkjunum. Nú er það Meyjan (23. ágúst – 22. september).

Meyjan er óþolandi. Hún stjórnar öndun sinni og litasamræmir fötin í fataskápnum. Meyjan hvorki prumpar né ropar. Meyjan hreinsar hvern fermeter af öllu sem hún á, með tannbursta, tvisvar á dag. Allt á sinn stað og tíma og hjá Meyjunni er það á gólfinu með stækkunargler að leita að bakteríum.

Þráhyggjusjúkdómur er fínt samheiti fyrir Meyjuna. Meyjan notar ábendingar og vandaðar töflur til að lýsa heimspekilegum hugtökum.

Það er auðvelt að fá Meyjuna til að fríka út. Segðu henni að það sé eitthvað á milli tannanna á henni. Horfðu svo á hana reyna að hreinsa eitthvað sem er ekki þar.

Meyjan er skemmtileg fyrir fífl eins og okkur hin. Fyrir Meyjuna væri helvíti að vera föst í lyftu með nöktum Vatnsbera. Vegna þess að Vatnsberinn mætir með bjór og hellir honum svo yfir allt gólfið.
Meyjan á líka erfitt með að slaka á ef/þegar eitthvað lendir undir ísskápnum. Stundum er það bara þunglynt Naut, en Meyjan veit að til þess að lokka það út er bara nóg að veifa köldu vínglasi.
Meyjan sér ekki heiminn í svörtu og hvítu. Hún sér hann í hreinu og skítugu. Kattahár fá Meyjuna til að froðufella. Meyjan er samt töff af því að hún mun sjá um óhreina þvottinn fyrir þig. Hún flokkar allt eftir litum og efni þangað til óhreina taushrúgurnar eru orðnar 15 talsins, með þremur flíkum í hverri. Síðan setur hún í þvottavélina í stafrófsröð eftir framleiðanda.
Meyjan finnst oft við ísskápinn að opna og loka hurðinni. Af hverju? Hún er að reyna að plata ísskápsljósið. Alls ekki setja ostinn á rangan stað í ísskápi Meyjunnar, hún mun láta þig heyra það. Hefurðu séð Shining eftir Stephen King? Jack Torrence var líklega Meyja í fyrri hluta myndarinnar, eftir það var hann Ljón.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur