fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Jólin hafa áhrif á dýrin

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 24. nóvember 2018 16:00

Hundar Rútínunni raskað.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólin eru hátíð manna, sköpuð af mönnum og fyrir menn. Dýrin verða þó mörg hver vör við þetta rask á almanaksárinu og kemur það misvel við þau. Sumar tegundir kunna afar vel við sig á jólunum og geta jólin jafnvel bjargað lífi þeirra. Önnur verða kvíðin, hrædd og óörugg. DV tók saman áhrif jólanna á nokkur algeng dýr.

Hundar í helvíti

Jólin eru sálfræðileg áskorun fyrir hunda sem eru einhver vanaföstustu dýr sem til eru. Skyndilega hefur enginn tíma til að fara út í göngutúr. Allt er fullt af gestum allir að farast úr stressi. Þar að auki er föst steikarlykt í loftinu alla hátíðina. Það er algjörlega undir mannúð eigandans komið hvort voffi fái eitthvað af afgöngunum. Sumir verða að láta sér nægja þurrfóðrið. Þegar jólin eru loksins búin og smá rútína að komast á lífið aftur þá skella áramótin á með sprengjum og meiri steik.

Kettir
Finnst jólin ansi fín.

Vanþakklátir kettir

Kettir „liffa og njódda“ á jólunum, sérstaklega ungir og fjörugir kettir. Nóg framboð er af dinglandi skrauti sem þeir geta eyðilagt og sígilt er að að rústa jólatrénu sjálfu. Þrátt fyrir að gera þennan óskunda fá þeir einhverra hluta vegna jólagjafir, nammi eða nýja mús. Þeir sýna samt ekkert þakklæti enda fyrir neðan þeirra virðingu að sýna mannfólki slíkt. Það eina sem köttum mislíkar við hátíðina er þegar eigendurnir klæða þá í búning og taka jólakattarmynd til að setja á Facebook.

Smáfuglar
Fá að borða.

Smáfuglar fá athygli

„Gleymum ekki smáfuglunum um jólin“ er mottó sem margir halda í heiðri. Er þá jafnvel rokið út í gæludýraverslun til þess að kaupa korn handa þessum krúttbollum sem eiga svo bágt í kuldanum. Veturnir eru erfiðir fyrir þessi litlu grey sem nenna ekki að fljúga yfir hafið á haustin. Jólin geta því verið lífsbjörg fyrir fugl sem hefur gengið erfiðlega að redda sér í gogginn um haustið. Eftir jólin er öllum hins vegar sama um smáfuglana, jafnvel þó að þá hefjist köldustu mánuðir ársins.

Gullfiskar
Sjá að minnsta kosti út fyrir búrið.

Lífsbjörg gullfiskanna

Gullfiskar eru frekar óáhugaverð kvikindi. Svo óáhugaverð að eigendurnir gleyma gjarnan að skipta um vatn hjá þeim og hreinsa búrið. Er líklegt að það sé ein helsta dánarorsök gullfiska og er tilverunni í kjölfarið sturtað niður í klósettið með lítilli viðhöfn. Fyrir jólin er hver krókur og kimi heimilsins þrifinn, þar á meðal fiskabúrið. Jólaþrifin geta því verið lífsbjörg gullfiskanna.

Kýr
Tala íslensku á jólum.

„Krípí“ kusur

Enginn veit hvað kýrnar hugsa á jólunum. Sjálfsagt eru þær að plotta eitthvað og best að vera var um sig. Sagan segir að kýrnar tali saman á mannamáli á jólunum. Það gera þær svo aftur bæði á nýársnótt og þrettándanum. Af hverju er ómögulegt að segja, kannski bara til að grilla í okkur mönnunum sem grillum þær á sumrin.

Kindur
Spólgraðar.

Graðar kindur

Jólin eru besti tíminn á árinu fyrir sauðfé. Nema það sauðfé sem endar sem hangikjöt á diskum manna á jóladag. Jólin eru nefnilega fengitíminn og hátíðin því eins og eitt allsherjar rómverskt kynsvall. Í sveitum landsins eru frygðarstunur hrúta og kinda ómissandi hluti af jólunum. Rétt eins og að heyra kirkjuklukkurnar hringja klukkan sex á aðfangadagskvöldi á gufunni.

Hænur
Álag á greyjunum.

Pressa á hænum

Aldrei eru egg eins mikilvæg fyrir menn og í jólabakstrinum. Er því mikil pressa á hænunum að verpa en bændur reyna að dreifa álaginu. Sjálfsagt eru jólin sjálf frekar tilbreytingarlítil fyrir þessa litlu vinnuþjarka, að minnsta kosti varphænsnin. Líklegra er að landnámshænur fái nokkur auka korn eins og mörg önnur húsdýr.

Hestar
Fastir í fylleríspartíi.

Fyllerí í kringum hesta

Hestar eru snobbdýr og því oft mikið tilstand í kringum þá. Hesthúsin eru gjarnan skreytt og hestamennirnir sjálfir halda gjarnan glögg þar. Eins og allir vita kunna Íslendingar ekki að halda glögg. Verða þeir ofurölvi og spýja rauðu í allar áttir. Þetta getur valdið töluverðu ónæði fyrir grey hrossin sem kjósa helst ró og næði. Jólin eru þó ólíkt skárri fyrir hestana en áramótin þegar þeir geta hreinlega tryllst af hræðslu við sprengingarnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Í gær

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell