fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Stelpur stöndum saman – Myndband sem hreyfir við þér

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 29. september 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bleika slaufan var afhjúpuð í gær og í áhrifamiklu myndbandi er bent á mikilvægi þess að vinahópar hvetji sínar konur til að mæta í krabbameinsleit og styðji ef kona greinist með krabbamein.

Aukin áhersla á þátttöku kvenna í skimun

„Í Bleiku slaufunni í ár viljum við taka höndum saman við vinnustaði, saumaklúbba og aðra vinahópa sem hafa sýnt sig að vera dýrmætur stuðningur við þá félaga sem veikjast af krabbameini og fá þá til að taka í sameiningu ábyrgð á því að „konurnar þeirra“ nýti tækifæri til reglubundinnar skimunar,“ segir á síðu krabbameinsfélagsins.

Tíma í skimun fyrir brjósta – og leghálskrabbamein má panta hér.

Á heimasíðu Bleiku slaufunnar má finna upplýsingar og ráðgjöf ef að þú hefur greinst með krabbamein, þekkir einhvern sem hefur greinst með krabbamein eða hefur misst ástvin úr krabbameini, auk fleiri upplýsinga.

Leikstjóri og höfundur myndbandsins er Haukur Björgvinsson. Leikkonur eru Anna Hafþórsdóttir, Móheiður Guðmunds, María Thelma og María Dögg Nelson ásamt Nanna Kristín Magnúsdóttir, Margrét Eir, Valdís Arnardóttir og Kolbrún Anna Björnsdóttir.

Bryndís Jakobsdóttir, Jóhann Vignir Vilbergsson og Halldór Gunnar Pálsson sáu um að taka upp frábæra ábreiðu af laginu Dagar og nætur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu