fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Annika Sörenstam heldur golfsýningu á Nesvellinum klukkan 11.30: Tækifæri til að læra af stórstjörnu

Margrét Gústavsdóttir
Mánudaginn 11. júní 2018 10:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Golfsýnikennsla (golf clinic) verður í boði fyrir almenning á Nesvellinum, í dag, 11. júní frá kl. 11.30-13.00

Allir eru velkomnir og við hvetjum ykkur til að fjölmenna á þennan sögulega viðburð. Síðast kom Jack Nicklaus og var með sýnikennslu á Nesvellinum en nú er komið að einum sigursælasta kylfingi sögunnar.

Margfaldur Íslandsmeistari kvenna og PGA kennar, Ragnhildur Sigurðardóttir, býður Anniku velkomna og Ólafur Loftsson, margfaldur NK meistari og Íslandsmeistari karla tekur þátt með Anniku.

Kristinn Ólafsson, formaður Nesklúbbsins, segir það heiður og mikla viðurkenningu fyrir klúbbinn að Nesvöllurinn hafi orðið fyrir valinu fyrir slíkan stórviðburð:

„Við verðum tilbúin í þetta stóra verkefni. Með dyggri aðstoð sjálboðaliða úr klúbbnum búum við náttúrulega yfir áralangri reynslu að halda viðburð á við shoot-outið/einvígið á Nesinu en þetta verður miklu stærra. Við erum svo heppin að félagsmenn okkar eru alltaf tilbúnir þegar til þeirra er leitað og við treystum þeim eftir sem áður til að leggjast á eitt og vera tilbúnir í þau störf sem fyrir liggja til að gera þennan viðburð ekki bara klúbbnum, heldur golfíþróttinni á Íslandi til sóma. Þeir kylfingar sem hafa verið lengi í golfi muna eflaust eftir þegar að Jack Nicklaus kom og hélt á Nesvellinum sambærilega sýningu 1976. Það er því stórkostlegt að fá tækifæri til að taka nú á móti Anniku Sörenstam, einu stærsta nafninu í sögu kvennagolfsins til okkar á Nesvöllinn,“ segir Kristinn.

Nú er bara að drífa sig út á völl í tæka tíð. Kennslan hefst eftir 45 mínútur (þegar þetta er ritað) og það má reikna með mikilli aðsókn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki