fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Þórhildur segir þetta einu ástæðuna fyrir því að fólk eigi að vera í sambandi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 13. desember 2024 12:29

Þórhildur Magnúsdóttir. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sambandsráðgjafinn Þórhildur Magnúsdóttir sneri til baka á Instagram eftir nokkurra mánaða pásu og sagði að það er, að hennar mati, ein ástæða fyrir því að fólk eigi að vera í sambandi: Að makinn gerir líf þitt betra.

„Eina ástæðan fyrir því að ég vil að þú sért í sambandi er að lífið þitt er betra með þessa manneskju í lífinu þínu heldur en án þess,“ segir Þórhildur.

„Við eigum að velja sambönd sem gera lífið okkar betra heldur en ef þessi manneskja væri ekki í lífinu okkar. Það þýðir ekki að sambandið á alltaf að vera ógeðslega næs og æðislegt, bara í heildarmyndina er lífið þitt betra með þessa manneskju í lífi þínu.“

Þórhildur hefur umsjón með vinsælu Instagram-síðunni Sundur og saman. Hún er verkfræðingur að mennt, lærði einnig jógakennarann en í dag eiga sambönd allan hug hennar. Hún býður bæði einstaklingum og pörum upp á námskeið til að hjálpa fólki að skapa heilbrigt og fallegt samband.

Spennt að vera komin aftur

Eins og fyrr segir er Þórhildur komin aftur á Instagram eftir nokkurra mánaða pásu. Hún segir að hún hefur saknað þess að vera á miðlinum.

„Ég er spennt að koma aftur,“ sagði Þórhildur í samtali við DV.

„Að styðja einstaklinga til að finna og skapa sitt besta líf með tilliti til sambanda er mín helsta ástríða. Hlakka til að gefa meira af mér.“

Þórhildur var gestur í Fókus, spjallþætti DV, í fyrra og ræddi um opin sambönd, lífið og tilveruna. Horfðu á þáttinn hér eða hlustaðu á Spotify.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís