

Kristján Einar Sigurbjörnsson, sjómaður og áhrifavaldur sem oftast er kallaður Kleini, var dæmdur í tæplega fjögurra ára fangelsi á Spáni í nóvember í fyrra fyrir ofbeldisfullt rán á Malaga. Frá þessu greindi Heimildin í nýjasta tölublaði sínu sem kom út í dag.
Kom þar fram að samkvæmt dómi í málinu hafði Kleini í félagi við annan mann ráðist að tveimur einstaklingum, rændu annan þeirra og gerðu tilraun til að ræna hinn. Brotin áttu sér stað í skjóli nætur og hafi báðir gerendur verið undir áhrifum fíkniefna. Tilvikin hafi verið aðskilin. Kom fram að Kleini játaði sök í málinu.
Eftir að Kleini kom aftur til Íslands hafði hann þó gert lítið úr ofangreindu máli í viðtölum og kallað það fyllerísslagsmál og að hann hefði ekkert gert af sér sem réttlætti fangelsisdóm.
Kleini hefur nú brugðist við fréttaflutningi Heimildarinnar í færslu á Instagram. Samkvæmt Kleina upplifði hann, eftir að hann kom aftur til Íslands, þrýsting um að tjá sig um atvikin. Hann hafi þó ekki verið tilbúinn en þó ákveðið að láta undan til að minnka áreitið í hans garð. Hann hafi ekki verið tilbúinn að líta í eigin barm og hafi ekki greint rétt frá öllum þáttum málsins. Segist hann sjá eftir því. Í dag sé sjómaðurinn kominn á betri stað en þó meðvitaður um að enn eigi hann langt í land.
Færslan í heild sinni:
„Vegna umfjöllunar fjölmiðla um þann dóm sem ég hlaut í nóvember í fyrra tel ég rétt að leiðrétta og útskýra betur þau ummæli sem ég hef látið frá mér falla varðandi það mál.
Þegar ég komst loksins aftur heim til Íslands eftir átta mánaða dvöl í gæsluvarðhaldi á Spáni upplifði ég gríðarlega utanaðkomandi pressu að segja mína sögu, ekki síst frá fjölmiðlum. Ég var á slæmum stað og taldi mig ekki tilbúinn til að ræða mín mál eða opna mig um mistök mín. Engu að síður tók ég ákvörðun, að mér fannst tilneyddur, um að gera einmitt það í þeirri von að áreitið myndi minnka.
Á þeim tíma var ég hins vegar ekki reiðubúinn til þess að horfa fyllilega í eigin barm og viðurkenna eigin mistök fyrir sjálfum mér – hvað þá allri þjóðinni. Ég greindi ekki rétt frá öllum þáttum málsins og varðandi aðra þætti lét ég það eftir mér að segja ekki alla söguna. Ég sé eftir því.
Breyskleiki er eitthvað sem allir ættu að þekkja og á þessum tíma var ég einfaldlega ekki nógu sterkur til þess að láta dæma mig út frá mistökum sem ég gerði á mínu veikasta augnabliki.
Ég var ekki kominn á þann stað sem ég er núna, sem er betri staður. Engu að síður geri ég mér grein fyrir því að ég á enn nokkuð í land í mínu bataferli og er staðráðinn í því að halda þeirri vegferð áfram með aðstoð minna nánustu.
Virðingarfyllst,
Kristján Einar Sigurbjörnsson“
View this post on Instagram