Þetta kemur fram í 90 mínútna myndbandi þar sem hann lætur móðan mása. Sky News skýrir frá þessu.
Þegar kemur að því að lýsa yfirstjórn hersins segir Girkin: „Fiskhöuðið er algjörlega úldið.“ Þetta er orðalag sem er dregið af rússnesku orðatiltæki sem segir að „fiskurinn rotni frá höfðinu og niður“ og þýðir einfaldlega að upplausn samfélagsins hefjist hjá leiðtogunum.
Girkin segir að þörf sé á miklum breytingum hjá rússneska hernum og að fleira hæft fólk þurfi til starfa hjá honum.
Girkin er ekki bara einhver Girkin úti í bæ því hann gegndi mikilvægu hlutverki þegar Rússar hertóku Krím 2014 og innlimuðu í Rússland og við skipulagningu hersveita úkraínskra aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu.
Hann er grjótharður þjóðernissinni og hefur verið mjög gagnrýninn á yfirstjórn hersins, þar á meðal á hendur Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra.
Hollensk yfirvöld hafa gefið út handtökuskipun á hendur honum en hann er sakaður um að vera einn af þeim sem skutu flugvél frá Malaysia Airlines niður yfir Úkraínu 2014. Hann er því grunaður um stríðsglæpi. Hann hefur vísað því á bug að það hafi verið úkraínskir aðskilnaðarsinnar sem skutu vélina niður.