fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025
Fréttir

Landsréttur mildaði verulega fangelsisdómin yfir banamanni Daníels – Tveggja ára fangelsi í stað þriggja og hálfs árs

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 25. nóvember 2022 17:37

Daníel Eiríksson. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur mildaði verulega fangelsisdóm yfir Dumitru Calin sem var dæmdur  manndráp af gáleysi og fyrir að hafa látið farast fyrir að koma manni til bjargar er Daníel Eiríksson lét lífið á föstudaginn langa árið 2021. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Calin skyldi dæmdur í 42 mánaða fangelsi fyrir verknaðinn en Landsréttur ákvað að milda dóminn niður í tveggja ára fangelsi.

Þetta kemur fram í dómi sem birtur var á heimasíðu Landsréttar nú fyrir stundu. Ákæruvaldið fór fram á að dómurinn yrði staðfestur og refsing Dumitru yrði þyngd en Landsréttur komst að annarri niðurstöðu. Málsvörn Dumitru var sjálfsvörn og tók Landsréttur meðal annars undir það að miðað við samskipti þeirra hafi hann haft ástæðu til að óttast Daníel.

Í dómnum kemur fram að Dumitru hafi ekið bifreið á 15-20 kílómetra hraða á klukkustund út af bílaplani þrátt fyrir að Daníel hafi haldið báðum höndum um hliðarrúðu hans sem dregin var niður að hluta. Daníel dróst þannig eða hljóp með bifreiðinni að minnsta kosti 13,9 metra en þá féll hann í jörðina. Í kjölfarið ók Dumitru af vettvangi án þess að huga að Daníeli.

Dumitru Callin í Héraðsdómi Reykjaness. Mynd: Ernir

Sjá einnig: Dómur fallinn yfir banamanni Daníels – Dumitru Calin fær 42 mánaða fangelsi og þarf að greiða 3 milljónir í miskabætur

Kemur fram í dómi Landsréttar að framburður Dumitru hafi hvorki verið skýr né fullkomlega stöðugur. Þannig hafi hann bæði borið að Daníel hafi staðið upp og hlaupið á eftir bifreiðinni og að hann hafi einungis reyntað standa á fætur. Eitthvað sem að sérfræðingur taldi afar ólíklegt en Daníel lést af völdum alvarlegs höfuðáverka. Ástand hans hafi verið mjög alvarlegt eftir að hann hlaut höfuðhöggið og ólíklegt að læknar hefðu getað bjargað lífi hans.

Sjá einnig: Banamaður Daníels ber vitni í Héraðsdómi Reykjaness – „Hann hélt í rúðuna og öskraði Stop the Car!“

Auk fangelsisvistarinnar var Dumitru greiða  alls 12.110.235 krónur samanlagt í miskabætur, sakarkostnað og málsvarnarlaun. Í dómi Landsréttar var hann að auki látinn greiða helminginn af rúmlega 1,5 milljón króna áfrýjunarkostnaði.

Sjá einnig: Harmleikurinn í Vindakór:Dumitru ræddi við DV – „Ég er mjög sorgmæddur yfir þessu“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir að stýra hjólabát á Jökulsárlóni bólufreðinn

Ákærður fyrir að stýra hjólabát á Jökulsárlóni bólufreðinn
Fréttir
Í gær

Tíu indverskum ferðamönnum bjargað í Svarfaðardal – Einn þeirra sokkalaus í tíu gráðu frosti

Tíu indverskum ferðamönnum bjargað í Svarfaðardal – Einn þeirra sokkalaus í tíu gráðu frosti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristófer segir illa farið með 65 ára starfsmann á Landakoti – Fengin á fund með blekkingum

Kristófer segir illa farið með 65 ára starfsmann á Landakoti – Fengin á fund með blekkingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona verður veðrið í dag: Búist við asahláku og glerhálku á hrekkjavökunni

Svona verður veðrið í dag: Búist við asahláku og glerhálku á hrekkjavökunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórdís Kolbrún þakklát eftir að Ronja var heimt úr helju – „Fólk er gott“

Þórdís Kolbrún þakklát eftir að Ronja var heimt úr helju – „Fólk er gott“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Keypti íbúð af eigin fyrirtæki á of lágu verði

Keypti íbúð af eigin fyrirtæki á of lágu verði