fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fundu lík tveggja COVID-19-sjúklinga – Létust fyrir 15 mánuðum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 2. desember 2021 07:00

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um síðustu helgi fundust lík tveggja COVID-19-sjúklinga í líkhúsi ESIC Rajajinagar sjúkrahússins í Bengaluru á Indlandi. Líkin fundust þegar líkhúsið var þrifið. Þau höfðu gleymst í kælinum að sögn lögreglunnar.

The Independent skýrir frá þessu. Líkin voru í innsigluðum pokum sem voru merktir sérstaklega þannig að ekki færi á milli mála að lík COVID-19-sjúklinga væru í þeim. Þetta voru lík Durga Smithra, 40 ára konu, og N L Muniraju, 67 ára karlmanns.

Þau létust bæði í fyrstu bylgju faraldursins í byrjun júlí 2020, þremur dögum eftir að þau voru lögð inn á sjúkrahús.

Talsmaður lögreglunnar sagði að hringt hafi verið frá sjúkrahúsinu síðasta laugardag og skýrt frá því að ræstitæknar hefðu fundið tvö lík í líkhúsinu sem var lokað í desember á síðasta ári þegar nýtt var tekið í notkun. Hræðilegan óþef lagði frá sumum kælihólfunum og þegar ræstitæknarnir opnuðu þau fundu þeir líkin tvö að sögn talsmannsins.

Ættingjar voru fengnir til að bera kennsl á líkin og þau voru send í krufningu og síðan afhent fjölskyldum hinna látnu.

Ættingjar þeirra segja að það hafi verið mikið áfall þegar lögreglan bað þá um að koma og bera kennsl á líkin, 15 mánuðum eftir að þeim var skýrt frá andláti þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu