Eyjan Gran Canaria er þriðja stærsta eyja Kanaríeyja en sú sem laðar til sín næstmest af ferðamönnum. Á meðal þekktra áfangastaða á eyjunni er náttúrufriðlandi Dunas de Maspolamas, tilkomumiklar sandöldur á suðurhluta eyjunnar. Svæðið var friðað árið 1982, ekki síst í ljósi þess að þar er mikilvægur áfangastaður farfugla í áætlunarferðum sínum milli Evrópu og Afríku. En nú ógna spólgraðir ferðamenn þessu náttúruundri.
Nýlegri grein í
Journal of Environmental Management, þar sem fjallað er um umhverfisáhrif ferðamennsku, kemur fram að rannsakaðir hafi verið 298 staðir á náttúverndarsvæðinu þar sem ferðamenn virðast hafa fengið útrás fyrir frygð sína. Staðirnir voru fyrst heimsóttir í maí 2018, þegar Gay Pride-hátíð var í fullum gangi á svæðinu, og þá var greinilegt að atgangurinn hafði nánast riðið viðkvæmum gróðri til fulls.
The dunes at Maspalomas are a top draw on Gran Canaria.
Það er ekki eftirsóknarvert að fá sand upp í sín viðkvæmustu svæði. Til að forðast það hafa ferðamenn á lóðaríi tekið sig til og rifið upp plöntur og annan gróður til þess að búa til ástarhreiður í sandinum sem og að búa sér til skjól. Þegar ástarfundinum er lokið er margskonar sorp skilið eftir – sígarettur, smokkar, klósettpappír, blautþurkkur og drykkjarílát. Þá fundust einnig fjölmörg svæði þar sem ferðamenn virtust hafa gengið örna sinna.
En það er ekki aðeins plönturnar sem að fara illa út úr ástarleikjum túrista. Í greininni kemur fram að eðlur, sem aðeins finnast á Gran Canaria-eyjunni, hafa drepist eftir að hafa borðað smokka á víðavangi.