fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
Fókus

Gullaldartími Hard Rock – Myndir

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 28. febrúar 2021 09:15

Samsett mynd DV - Myndir Timarit.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hard Rock Café var fyrst opnað á Íslandi sumarið 1987 í Kringlunni. Staðurinn varð fljótt ákaflega vinsæll og lét fólk sig hafa það að bíða löngum stundum eftir borðum. Starfsfólkið var hipp og kúl, maturinn góður og tónlistin hátt stillt. Ekki má heldur gleyma að hálfur bíll, amerískur kaggi stóð út undan þaki staðarins. Slíkt hafði ekki sést áður hér á landi. 

Starfsfólkið var brosmilt, klætt einkennisbúningum, konur í hvítum, stuttum kjólum og hvítum hjólabuxum innan undir og menn í svörtum skyrtum. Barmmerkin skipuðu stóran sess, en allir starfsmenn gengu með barmmerki sem voru einnig seld á staðnum ásamt bolum, böngsum og öðrum varningi. Tónlistin var spiluð hátt og fatnaður og tónlistarmunir úr eigu heimsþekktra listamanna prýddu staðinn og fljótlega tóku munir frá íslenskum stjörnum að bætast við.

Staðurinn var að vissu leyti uppreisnarseggur með sinni háu tónlist og var um tíma eini staðurinn sem var opinn á föstudaginn langa. Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, stofnaði Hard Rock árið 1987 en staðnum var lokað árið 2005. Á gullaldartímum Hard Rock var staðurinn ákaflega vinsæll og margir ungir töffarar unnu þar.

Tómas A. Tómasson stofnandi fyrsta Hard Rock staðarins á Íslandi

 

Tónlistar- og fjölmiðlamenn

Gísli Marteinn var 16 ára þegar hann hóf störf á Hard Rock sem „bus boy“ en möguleiki var að fá stöðuhækkun upp í „food runners“ eða jafnvel þjónastarf. Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður og upptökustjóri hóf einnig störf á staðnum 16 ára og störfuðu þeir Gísli saman. Jóhann Bachmann eða Jagúar-Jói, Frosti Logason fjölmiðlamaður og Einar Bárðarson lagahöfundur og athafnamaður, störfuðu allir á Hard Rock, en Einar rak staðinn á árunum 1999-2000.

Margar heitustu hljómsveitir landsins stigu á stokk á Hard Rock og voru það ófáar stjörnur sem mættu á kveðjutónleika staðarins árið 2015 þegar skellt var í lás eftir 18 ára rekstur.

Þekktir veitingamenn

Margir þekktir veitingamenn störfuðu einnig á staðnum og má þá helst nefna Bento Guerreiro, sem er í dag einn umsvifamesti veitingahúsaeigandi landsins, Haukur Víðisson fyrrum eigand Vegamóta og stofnandi Saffran, Friðrik Ármann Guðmundsson, Frikki Meló fyrrum eigandi Melabúðarinnar og Jón Örn Eiríksson eigandi Kjötkompanís. Tommi sjálfur stökk einnig í hin ýmsu störf t.d. sem sætavísa.

Hard Rock opnaði að nýju árið 2018 í Lækjargötu en aðrir eigendur eru að baki þeim rekstri.

Helga Bjarnadóttir og Kristbjörg Kristinsdóttir tóku við rekstrinum sumarið 1997

 

Elís Árnason  FYRRUM framkvstj. í Hard Rock  ásamt starfsstúlkum.
Bylgjan startar sumarmóti sínu á hard rock café
Logar, hljómsveitin Logar afhenda Hard Rock Café gullplötuna sína
Kveðju Concert Hard Rock
Kveðju Concert Hard Rock
Kveðju Concert Hard Rock
Tommi sjálfur.
Kveðju Concert Hard Rock
Jón, Elías (sem sem rekur Hard Rock), Bó og Stebbi
Kveðju Concert Hard Rock
Kveðju Concert Hard Rock
Kveðju Concert Hard Rock – Kokkar í stuði 

September 1999, Stuðmenn á veitingastaðnum Hard Rock. F.v. eru Jakob Frímann Magnússon, Ragnhildur Gísladóttir, Tómas Tómasson og Þórður Árnason. Stuðmenn
Kveðju Concert Hard Rock  – Starfsfólk Hard Rock
Sara Guðmundsdóttir er ein þeirra sem starfaði á Hard Rock.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ofurfyrirsætan og eiginmaðurinn eru í mánaðalangri „orma- og sníkjudýrahreinsun“

Ofurfyrirsætan og eiginmaðurinn eru í mánaðalangri „orma- og sníkjudýrahreinsun“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Olga var í fjörunni á Álftanesi þegar hún fékk ónotatilfinningu – „Ég var með bíllykilinn í krepptum lófanum“

Olga var í fjörunni á Álftanesi þegar hún fékk ónotatilfinningu – „Ég var með bíllykilinn í krepptum lófanum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Telur sig hafa fengið krabbamein vegna framhjáhaldsins

Telur sig hafa fengið krabbamein vegna framhjáhaldsins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Laufey spurð erfiðrar spurningar um Ísland – „Ég get ekki sagt neitt“

Laufey spurð erfiðrar spurningar um Ísland – „Ég get ekki sagt neitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sara þjálfari segir það sem er erfitt að heyra – Þetta hjálpaði henni að ná árangri

Sara þjálfari segir það sem er erfitt að heyra – Þetta hjálpaði henni að ná árangri
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjaldséð sjón: Grease-stjarna orðin 74 ára

Sjaldséð sjón: Grease-stjarna orðin 74 ára