fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Eyjan

Inga Sæland – „Það mun ég líka gera og aldrei láta þagga niður í mér“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 3. mars 2020 13:30

Inga Sæland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sem kjör­inn full­trúi sæti jafn­vel óbeinu ámæli og er mætt með fyr­ir­litn­ingu í rík­is­fjöl­miðlin­um RÚV fyr­ir það að ég skuli dirf­ast að spyrja spurn­inga og veita stjórn­völd­um aðhald í þessu máli. Það er al­veg ljóst að staðan er al­var­leg. Í ná­granna­lönd­um okk­ar er talað af fullri al­vöru um hætt­una. Það mun ég líka gera og aldrei láta þagga niður í mér,“

segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í Morgunblaðsgrein í dag. Hún komst í fréttirnar á dögunum fyrir að leggja til Egilshöll sem stað fyrir sóttkví íslendinga á leið heim frá Tenerife, í viðleitni sinni til að stemma stigu við frekari útbreiðslu COVID-19.

Sú hugmynd var fljótlega skotin í kaf af sérfræðingum þar sem slíkt gæti einmitt haft þveröfug áhrif, og smitað fleiri en ella.

Inga ræddi síðan málið í Kastljósinu þar sem spyrillinn þjarmaði að Ingu fyrir að tala óvarlega um hluti sem hún hefði takmarkað vit á, en Inga sagðist sjálf ekkert vit hafa á veirunni, enda væri hún fordæmalaus og hún gæti ekki þóst vita en aðrir.

Sex prósenta dánartíðni

Inga setur fram tölfræði sem hún telur til marks um alvarleika veirunnar:

„Nú hafa um 90 þúsund manns fengið veik­ina. Þar af eru rúm­lega þrjú þúsund dáin. Það eru ríf­lega þrjú pró­sent þeirra sem hafa fengið sjúk­dóm­inn. Átján pró­sent þeirra sem glíma við sjúk­dóm­inn sem stend­ur eru skil­greind sem al­var­lega veik. Dán­ar­hlut­fallið er enn al­var­legra ef litið er til þess hve marg­ir annaðhvort ná bata eða deyja. Tæp­um 47 þúsund­um er batnað, þrjú þúsund dáin. Það eru sex pró­sent. Ef töl­urn­ar eru rétt­ar þá eru þetta staðreynd­irn­ar sem við horf­umst í augu við. Hér á landi hafa dyrn­ar fyr­ir smit inn í landið staðið gal­opn­ar. Áhersl­an lögð á að byrgja brunn­inn eft­ir að við vær­um dott­in ofan í hann. Sex hafa þegar greinst með veiruna og um 260 eru í sótt­kví.“

Yfirvegun og raunsæi

Inga segir dánartíðni veirunnar mun hærri en venjulegrar flensu og ekki megi tala niður hættuna af COVID-19:

„Gagn­vart slíkri vá þjón­ar eng­um til­gangi að tala niður hætt­una sem af henni staf­ar. Við verðum að nálg­ast vand­ann af yf­ir­veg­un og raun­sæi. Fólk fer ekki var­lega nema það viti hvað er í húfi. Nú ætti þetta kannski ekki að vera svo al­var­legt mál að sumra mati sem segja að þetta sé nú bara eins og hver önn­ur flensa. Dán­artíðnin seg­ir þó allt annað. Samt ger­ir jafn­vel menntaður og hingað til al­mennt virt­ur lækn­ir lítið úr því sem nú stend­ur fyr­ir dyr­um og get­ur þró­ast í stór­slys.“

Þess má hinsvegar geta að venjulega flensan (influenza) sem Inga talar um, hefur sýkt yfir 32 milljónir manna hvar um 18 þúsund hafa látist og 310 þúsund manns þurft að leita á sjúkrahús, bara í Bandaríkjunum einum á þessu ári. Það er talsvert meira en COVID-19 hefur gert fram til þessa. Sjá nánar hér.

Sjá einnig: 

Gunnar Smári segir Einar hafa enga sómakennd og Eiríkur tekur undir

Ólafur kemur Einari til varnar og baunar á Gunnar Smára og Ingu Sæland 

Inga Sæland gáttuð á menntahroka gagnrýnenda hennar – „Gera lítið úr skoðunum annara, kalla þá frekjudollur lýðskrumara og fávita“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum