fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Er virkilega hættulegt að nota eyrnapinna til að hreinsa eyrun?

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 17. desember 2018 18:30

Ekki nota eyrnapinna!

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið freistandi að sækja eyrnapinna þegar eyrnamergur er farinn að gera vart við sig í eyrunum eða kláði sækir að. En það er betra að hugsa sig vel um áður en farið er að pota eyrnapinna inn í eyrun, að minnsta kosti miðað við það sem margir hafa fengið að heyra frá foreldrum eða vel upplýstum vinum sínum. Aðrir hafa aftur á móti fengið þær upplýsingar að eyrnapinnar séu einmitt til að hreinsa eyrun og ekkert að því að nota þá til þess.

Danska ríkisútvarpið fjallaði nýlega um málið og ræddi við Therese Ovesen, yfirlækni og prófessor í háls-, nef- og eyrnalækningum. Hún sagði að fólk eigi alls ekki að nota eyrnapinna því ef þeir eru notaðir þá eykst eyrnamergsframleiðslan því eyrnamergskirtlarnir halda að drulla sé í eyrunum og auka framleiðsluna sem því nemur. Þá sé fólk komið inn í slæman vítahring sem erfitt er að losna út úr.

Hún sagði einnig að ef fólk notar eyrnapinna ýti það eyrnamerg lengra inn í eyrun. Auk þess geti þeir rispað húðina í eyrunum og þá verður fólki hættara við að fá sýkingu. Ef eyrnapinnar fara of langt inn í eyrun geta þeir gert gat á hljóðhimnuna og það er auðvitað allt annað en þægilegt.

Hún sagði það stóran misskilning að fólk þurfi að hreinsa eyrun. Þau sjái alveg um það sjálf. Eyrnamergurinn sé einmitt til þess. Hann taki til sín drullu og dauðar frumur. Hún sagði að það væru þó ákveðin undartekningartilfelli þar sem þarf að hreinsa eyrun en þá eigi fólk að fara til eyrnalæknis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“