fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025

Ingibjörg um fordóma: „Uppáhaldið mitt er þegar lítil börn stoppa og stara, ekki biðja mig afsökunar“

Öskubuska
Föstudaginn 2. mars 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef gengið í gegnum hinu ýmsu tímabil í lífinu, tekið hin ýmsu “phase” – góð og slæm (mitt uppáhalds er án efa 2006 emo/goth phase’ið mitt). En ég hef alltaf elskað að sjokkera fólk, vera öðruvísi.

Ég man hvað mér fannst frábært að standa úti með stóru gaddaólina mína í einhverjum fallhlífarbuxum með keðjum á og bókstaflega bíða eftir óþægilegum augngotum frá eldra fólki, eða þegar ég teiknaði í fyrsta skipti á mig fjólubláar augabrúnir (sem fylgdu mér svo í 3 ár og í dag teikna ég þær bara í stíl við hárið!).

Ólýsanleg athyglissýki

Ég veit ekki hvað það er, ólýsanleg athyglissýki mögulega? Hvað sem það er þá er það bara stór partur af mér og verður held ég alltaf.

Ég lenti nýlega í því að vera í röð á kassa í Nettó og í röðinni við hliðin á mér er lítil stelpa, á aldur við Hólmgeir, og hún starir og starir og brosir alltaf svona feimnislega til mín. Þegar pabbi hennar tók eftir því hálf dró hann hana áfram og bað mig afsökunar á því að hún hafi verið að stara. Þó að uppáhaldið mitt sé án efa þegar lítil börn stoppa og stara.

Þegar börnin ykkar gera það, ekki biðja mig afsökunar, ekki segja þeim að gera þetta ekki. Þau eru forvitin, leyfið þeim að skoða. Þau eru hrifin af litunum, ég álasa þeim ekki.

Eins og margir á svipuðum stað og ég, hef ég alltaf haldið því fram að ég hafi orðið fyrir hafsjó af fordómum vegna þess hvernig ég lít út.

En er það í rauninni þannig?

Ég hef oft fengið augngotur, skrýtnar spurningar út í götin mín, endalaust af spurningum þess eðlis hvort ég viti ekki að ég verði með þessi tattú að eilífu (nei ha? í alvörunni?). En eru þessar spurningar því fólk er með fordóma?

Eru þær ekki bara vegna þess að það er forvitið og þú sérð kannski ekki einhvern með gat í kinnunum, hanakamb og engar augabrúnir daglega?

Ég var að hugsa um þetta um daginn á leiðinni heim úr búðinni og þá sló það mig, eins og blaut köld tuska. Ég held að einu fordómarnir sem ég hef orðið fyrir vegna míns útlits, séu þeir sem ég ákveð að fólk sé með.

Ég einhvern veginn er bara búin að ákveða að það hvernig ég líti út sé ekki samþykkt og sé litið hornauga á það en þegar ég hugsa út í það hefur þetta hefur aldrei háð mér, hvorki í mínu persónulega lífi eða t.d. við það að fá vinnur.

Kannski er heimurinn orðinn örlítið umburðarlyndari en við höldum. Bara kannski.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sýndu óásættanlega óvirðingu í leiknum í gær – Bauluðu þegar minning Jota var heiðruð

Sýndu óásættanlega óvirðingu í leiknum í gær – Bauluðu þegar minning Jota var heiðruð
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Mun Chelsea samþykkja skiptin?

Mun Chelsea samþykkja skiptin?
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Nýtt heimsmet í Húsafellshelluburði

Nýtt heimsmet í Húsafellshelluburði
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rashford mistókst að skora fyrir opnu marki

Rashford mistókst að skora fyrir opnu marki
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ofurtölvan spáir í spilin: Salah kemst ekki nálægt Haaland – Nýjasta stjarna United ekki líkleg

Ofurtölvan spáir í spilin: Salah kemst ekki nálægt Haaland – Nýjasta stjarna United ekki líkleg
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Peter Andre bregst við „ógeðslegum“ skilaboðum sem 18 ára dóttir hans fær

Peter Andre bregst við „ógeðslegum“ skilaboðum sem 18 ára dóttir hans fær
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Fjarlægja hátalara sem útvarpa áróðri til Norður-Kóreu

Fjarlægja hátalara sem útvarpa áróðri til Norður-Kóreu
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Svakalegar lýsingar á óskum Andrésar prins – „Ég er diplómat, ekki melludólgur“

Svakalegar lýsingar á óskum Andrésar prins – „Ég er diplómat, ekki melludólgur“