fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 16:30

Fengurinn kominn upp á hafnarbakkann. Mynd:Spænska lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spænska lögreglan komst nýlega í feitt því hún lagði hald á 30 tonn af kókaíni sem er talið hafa átt að fara á markað í Evrópu. Verðmæti efnisins er að minnsta kosti 120 milljarðar króna að sögn Bild.

Kókaínið fannst í skipinu Arconian þegar það lá fyrir festum við strendur Afríku. Í lest skipsins voru 30 tonn af kókaíni auk skotvopna og skotfæra.

Skipið var fært til hafnar í Las Palmas á Kanaríeyjum þar sem farminum var skipað í land.

Öll áhöfnin, 23 menn, er í haldi spænsku lögreglunnar.

Lögreglan telur að smyglararnir hafi ætlað að flytja kókaínið yfir í hraðbáta, þegar skipið væri komið nær spænska meginlandinu, og flytja það þannig í land.

Arconian sigldi undir fána Kómoreyja og var á leið frá Sierra Leone til Líbíu.

Evrópsk yfirvöld hafa aldrei áður lagt hald á svo mikið magn kókaíns í einu. Gamla metið var frá 2024 en þá fann þýska lögreglan 25 tonn á hafnarsvæðinu í Hamborg. Efnið var þá falið í fjölda ávaxtagáma sem voru að koma frá Suður-Ameríku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Í gær

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn