fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Sex ungar stúlkur voru myrtar – Lögreglan taldi raðmorðingja vera að verki

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 19:30

Var raðmorðingi að verki?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sex ungar svartar stúlkur voru numdar á brott og myrtar í Washington D.C. frá apríl 1971 og fram í september 1972. Lögreglan og fjölmiðlar voru á þeirri skoðun að raðmorðingi væri að verki og var hann nefndur „Freeway Phantom“.

Morðinginn nam stúlkurnar á brott og skildi lík þeirra eftir við hraðbrautir og hæddist að lögreglunni í eitt sinn þegar hann skildi handskrifuð skilaboð eftir.

Á vorkvöldi 1971 fór Carol Spinks, 13 ára, út og ætlaði að skjótast í búð í nágrenninu. Hún kom aldrei aftur heim. Nokkrum dögum síðar fannst lík hennar nærri hraðbraut.

Borgarbúar voru skelfingu lostnir og þrátt fyrir mikla vinnu lögreglunnar tókst ekki að leysa málið og er það enn óleyst.

Morðið á Carol var það fyrsta. Niðurstöður krufningarinnar voru að henni hefði verið haldið fanginni dögum saman áður en hún var myrt. Þetta þótti benda til að morðinginn hefði skipulagt allt vel áður en hann lét til skara skríða.

Nokkrum mánuðum síðar hvarf hin 16 ára Darlenia Johnson þegar hún var gangandi á leið í vinnuna. Lík hennar fannst nærri þeim stað þar sem lík Carol fannst. Það var ekki hægt að horfa fram hjá hversu lík málin voru.

People segir að morðin hafi síðan haldið áfram um sumarið og haustið. Brenda Faye Crockett, 10 ára, var numin á brott þegar hún var að sinna erindum. Henni tókst að hringja heim eftir að hún var numin á brott og sagði að maður hefði tekið hana upp í bílinn sinn og lofað að koma henni heim en hún kom aldrei heim.

Nenomoshia Yates, 12 ára, var numin á brott þegar hún var á leið í búðina. Lík hennar fannst nokkrum klukkustundum síðar.

Brenda Woodard, 18 ára, var numin á brott þegar hún var á gangi heim eftir kvöldskóla. Diane Williams, 17 ára, var síðasta fórnarlambið svo vitað sé.

Í öllum málunum var mynstrið svipað. Stúlkurnar voru numdar á brott á slóðum sem þær þekktu vel og lík þeirra fundust síðan nærri hraðbrautum. Lögreglan sagði á sínum tíma að morðinginn hafi líklega blekkt stúlkurnar eða þekkt til þeirra og þannig hafi hann unnið traust þeirra.

Mest hrollvekjandi vísbendingin kom fram í tengslum við morðið á Woodard. Handskrifuð skilaboð fundust í jakkavasa hennar og er talið að morðinginn hafi neytt hana til að skrifa þau.

„Þetta jafngildir ofnæmi mínu gagnvart fólki, sérstaklega konum. Ég mun játa hin ef þið náið mér!“ stóð á blaðinu. Undir það var ritað „Free-way Phantom“.

Skilaboðin bentu til að morðinginn vildi öðlast ákveðna viðurkenningu og væri þess fullviss að hann myndi ekki nást.

Um 100 manns unnu að rannsókn morðanna og kom fjöldi löggæslustofnana að þeim. Enginn ákæra hefur verið gefin út vegna morðanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?