
TV2 segir að um tíundi hver sé nú brenndur í pappaöskju í stað trékistu. Líkið er í hefðbundinni trékistu þegar útförin fer fram. Sú kista er síðan notuð aftur.
Venjulega eru um 50 kíló af timbri brennd við hverja líkbrennslu en með því að líkið sé sett í pappaöskju eru það aðeins sjö kíló af pappa sem enda í ofninum með líkinu.
Það er því mikill ávinningur út frá umhverfissjónarmiðum að haga líkbrennslunni með þessum hætti.
Við útförina er líkið í pappaöskjunni, sem er ofan í hefðbundinni kistu. Þegar komið er í líkbrennsluna er ytra byrðið tekið af. Pappaaskjan getur tekið við allt að 125 kílóa líki og í henni eru dýna, koddi og teppi eins og í hefðbundinni kistu.