

Landhelgisgæslan fylgist nú grannt með ferðum rússnesks herskipts sem siglir milli Íslands og Grænlands, innan íslensku efnahagslögsögunnar. Skipið er með takmarkaðan vopnabúnað og er fyrst og fremst njósnaskip, er það notað til að fylgjast með aðgerðum NATÓ á hafsvæðinu.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu um málið segir:
„Landhelgisgæsla Íslands, í nánu samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og herstjórnir Atlantshafsbandalagsins, fylgist nú grannt með ferðum rússnesks herskips sem siglir utan 12 sjómílna landhelgi landsins en innan efnahagslögsögunnar, n.t.t. á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands.
Um er að ræða rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov sem fylgdist með æfingu Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi í síðustu viku. Skipið er með takmarkaðan vopnabúnað og sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun, en engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu.
Rússnesk herskip af þessu tagi fylgjast með æfingum og aðgerðum Atlantshafsbandalagsins og sigla reglulega inn í efnahagslögsögu annarra bandalagsríkja, en nýverið var greint frá veru skipsins sem um ræðir undan ströndum Noregs.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fór í eftirlitsflug út að skipinu í gær og tók ljósmyndina hér að neðan. Í morgun var skipið á siglingu vestur af landinu en jafnframt er fylgst náið með ferðum skipsins í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.“