fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Fyrrum framkvæmdastjóri NATÓ varar við – „Þetta er hættulegt“

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 13:30

Anders Fogh Rasmussen. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anders Fogh Rasmussen, fyrrum framkvæmdastjóri NATÓ og forsætisráðherra Danmerkur, hefur miklar áhyggjur af þeirri þróun sem á sér nú stað innan NATÓ.

Þetta sagði hann í samtali við þýska miðilinn Die Welt. Hann dró upp dapra mynd af stöðu mála hjá varnarbandalaginu og sagði að einn maður beri ábyrgð á stöðu mála.

„Það sem við sjáum núna, er upplausn NATÓ, og það er hættulegt,“ sagði hann.

Það er Donald Trump sem Rasmussen telur að beri ábyrgð á þeim brestum sem eru komnir í NATÓ.

Trump hefur ítrekað hellt sér fyrir evrópska bandamenn Bandaríkjanna í NATÓ. Sérstaklega vegna þess að þeir hafa ekki viljað koma Bandaríkjunum til aðstoðar í stríði þeirra gegn Íran og við að halda Hormússundi opnu.

Rasmussen benti á að Trump hafi skapað svo mikinn vafa um hvort Bandaríkin muni virða NATÓ-sáttmálann og koma Evrópu til aðstoðar ef ráðist verður á evrópskt aðildarríki NATÓ. Hann sagði að aðeins sé hægt að komast að einni niðurstöðu út frá ummælum Trump og hún sé að Evrópa verði að standa á eigin fótum og sjá um varnir álfunnar.

Hann sagðist telja að nú sé tími til kominn að Evrópuríkin gerir heri sína óháða Bandaríkjunum. Hann lagði því til að nýtt evrópskt varnarbandalag verði stofna, án aðkomu Bandaríkjanna. Aðildarríki nýja bandalagsins muni skuldbinda sig til að verja minnst fimm prósentum af þjóðarframleiðslu sinni til varnarmála og þess utan skuldbinda sig til að koma öðrum aðildarríkjum til varnar ef á þau verður ráðist. Ef ríki uppfylla ekki þessi skilyrði á að vera hægt að vísa þeim úr bandalaginu sagði Rasmussen.

Hann sagðist telja að stórveldin Þýskaland, Frakkland, Bretland og Ítalía séu upplagðir leiðtogar í þessu samhengi og að hann telji að taka eigi Úkraínu inn í þetta nýja bandalag sem fullgildan meðlim.

Hann viðurkenndi að stærsta öryggistrygging Evrópu yrði áfram að vera „kjarnorkuregnhlíf Bandaríkjanna“ en að Evrópa verði sjálf að sjá um „hefðbundnar varnir“ sínar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað