fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Ávextir og grænmeti geta aukið hættuna á lungnakrabbameini

Pressan
Sunnudaginn 7. júní 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lungnakrabbamein leggst yfirleitt á eldra fólk og sérstaklega reykingafólk. En samkvæmt upplýsingum frá USC Norris Comprehensive Cance Center þá hefur tilfellum lungnakrabbameins hjá fólki sem reykir ekki og er yngra en 50 ára farið fjölgandi, sérstaklega hjá konum.

Á sama tíma hefur lungnakrabbameinstilfellum farið fækkandi í Bandaríkjunum síðan á níunda áratugnum. Ástæðan er að færri reykja en áður.

Þessi nýja þróun hefur því orðið til þess að vísindamenn hafa sperrt upp augun og hafist handa við að rannsaka hvað veldur þessu.

Í nýrri rannsókn, sem var birt í vísindaritinu SciTechDaily, tóku 187 sjúklingar þátt. Flestir þeirra höfðu aldrei reykt og lungnakrabbameinið hjá þeim var öðruvísi en það sem leggst yfirleitt á reykingafólk.

Vísindamennirnir rannsökuðu mataræði þátttakendanna og notuðust við stigakerfi þegar þeir lögðu mat á það. Í ljós kom að mataræði ungu sjúklinganna var almennt hollara en mataræði Bandaríkjamanna er að meðaltali.

Þeir borðuðu meira af ávöxtum, grænmeti og grófu korni. Konurnar, sem tóku þátt í rannsókninni, fengu flest stig.

Upplýsingar um mataræði þátttakendanna byggðust á svörum þeirra um mataræði og lífsstíl.

Vísindamennirnir telja að umhverfisáhrif geti hugsanlega skýrt þetta og benda sérstaklega á skordýraeitur í matvælum en það er oft matvælum sem eru ræktuð á hefðbundinn hátt.

Fyrri rannsóknir hafa sýnt að fólk, sem er í mikilli snertingu við skordýraeitur, eins og þeir sem starfa við landbúnað, fá oftar lungnakrabbamein en aðrir.

Það er í sjálfu sér ekki hollur matur sem er vandamálið, heldur geta eiturefni í umhverfinu í kringum matvælin leikið hlutverk hvað varðar lungnakrabbamein hjá ungu fólki sem reykir ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin

Melania varð brjáluð – Sérstök regla um Barron var brotin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað