
Fabio Capello telur að Noregur gæti komið á óvart á HM í sumar með Erling Braut Haaland í fararbroddi.
Capello segir mörg lið vanmeta Norðmennina, sem eru komnir á HM í fyrsta sinn síðan árið 2000.
„Mér finnst Noregur mjög áhugavert lið,“ sagði þessi fyrrum landsliðsþjálfari Englands.

„Haaland er stór og frábær framherji. Þeir gætu komið öllum á óvart.“
Capello nefndi einnig góðan árangur Bodo/Glimt í Meistaradeildinni sem dæmi um framfarir norsks fótbolta.
Haaland skoraði 38 mörk í 52 leikjum fyrir Manchester City á síðustu leiktíð og verður án efa helsta von Norðmanna á mótinu.
Noregur er í riðli með Frakklandi, Írak og Senegal á mótinu vestan hafs.