fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Fókus

Steven Seagal mættur aftur í sviðsljósið í Rússlandi

Fókus
Föstudaginn 5. júní 2026 14:30

Steven Seagal á ráðstefnunni í gær. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski hasarmyndaleikarinn Steven Seagal, sem naut mikilla vinsælda á níunda og tíunda áratug síðustu aldar, virðist kunna vel við sig í Rússlandi ef marka má myndir sem birtust af honum í vikunni.

Þetta er í fyrsta sinn í níu mánuði sem Seagal sést opinberlega á myndum. Hann hefur búið í Rússlandi um árabil og er þekktur fyrir náin tengsl sín við Vladimír Pútín, forseta landsins.

Seagal, sem er 74 ára, sótti Alþjóðlegu efnahagsráðstefnuna í Sankti Pétursborg (SPIEF) á fimmtudag. Hann var skráður þátttakandi í pallborðsumræðum um menningarmál á ráðstefnunni, sem telst einn mikilvægasti árlegi viðburður Rússlands á sviði efnahags- og viðskiptamála.

Hefur búið í Rússlandi í áratug

Undanfarin ár hefur leikarinn vakið athygli fyrir stuðning sinn við rússnesk stjórnvöld og sérstaklega Pútín forseta.

Þrátt fyrir að vera fæddur í Michigan í Bandaríkjunum fékk Seagal rússneskan ríkisborgararétt árið 2016 og hefur síðan búið að mestu í Rússlandi.

Árið 2018 var hann skipaður sérstakur fulltrúi fyrir mannúðarsamskipti milli Rússlands og Bandaríkjanna. Síðar gekk hann til liðs við stjórnmálaflokk sem styður stjórnvöld í Kreml og lýsti meðal annars yfir stuðningi við innrás Rússa í Úkraínu árið 2022. Þá hefur hann tekið þátt í ýmsum áróðursverkefnum tengdum stríðinu.

Fyrir störf sín á sviði menningar- og mannúðarmála hlaut Seagal rússnesku vináttuorðuna árið 2023.

Var einn sá þekktasti

Auk rússnesks ríkisborgararéttar er Seagal einnig með serbneskan ríkisborgararétt. Í september á síðasta ári var honum boðið til Serbíu af Aleksandar Vučić forseta með það að markmiði að efla menningar- og listatengsl landsins við umheiminn.

Seagal fæddist í Lansing í Michigan árið 1952 en flutti með fjölskyldu sinni til Kaliforníu á barnsaldri. Hann lagði stund á bardagalistir og hóf feril sinn í kvikmyndageiranum sem umsjónarmaður bardagaatriða áður en hann sló í gegn sem leikari.

Á hátindi ferils síns var Seagal einn þekktasti hasarmyndaleikari heims. Hann öðlaðist frægð með kvikmyndum á borð við Above the Law, Hard to Kill, Marked for Death, Out for Justice og Under Siege. Síðar lék hann í fjölda annarra mynda og sjónvarpsþátta, en síðasta kvikmynd hans, Beyond the Law, kom út árið 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Stórleikarinn vill hætta að greiða fimm stafa mánaðarlegt meðlag

Stórleikarinn vill hætta að greiða fimm stafa mánaðarlegt meðlag
Fókus
Fyrir 1 viku

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli