fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 29. maí 2026 07:30

Ferðamenn fyrir framan Skógafoss en tíðar myndatökur á vinsælum ferðamannastöðum vekja óánægju sumra ferðamanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur ferðamaður á Íslandi kvartar yfir hegðun annarra ferðamanna við fjölsótta ferðamannastaði. Segir hann marga hugsa eingöngu um að taka myndir með skjótum hætti í stað þess að staldra við og njóta augnabliksins og fegurðinnar. Segist ferðamaðurinn hafa reynt að gera þetta á hverjum stað en þær tilraunir hafi margsinnis verið skemmdar vegna freklegrar framgöngu annarra ferðamanna sem hugsi um það eitt að taka myndir.

Ferðamaðurinn gerir þetta að umtalsefni á Reddit. Hann segist hafa verið á ferð um Ísland síðustu tvær vikur. Ísland sé afar fagurt land og hann hafi notið þess að læra um íslenska sögu og menningu og skoða fallega staði víða um landið:

„Að því sögðu hef ég komið á suma af vinsælustu stöðunum og orðið var við neikvæða hegðun af hálfu annarra ferðamanna. Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt í burtu svo fólk geti tekið myndir af sjálfu sér og farið svo strax. Ég skil að fólk vilji taka góða mynd en það virðist sem að stundum trompi það að vera sjálhverfur það að sýna öðrum virðingu og þeirri reynslu sem viðkomandi eru að upplifa.“

Bíða

Ferðamaðurinn bætir við:

„Ef þú sérð einhvern standa, njóta sín án þess að gefa frá sér hljóð og horfa á náttúruundrin sem eru allt um kring þá er það ekki sérlega indælt að biðja viðkomandi að fara frá eða ýta honum í burtu og neyða hann til að færa sig svo þú getir tekið mynd. Vinsamlegast bíddu þangað til röðin kemur að þér.“

Líflegar umræður eru um innlegg ferðamannsins. Einn aðili vill meina að svona hegðun sé sprottin af tilkomu samfélagsmiðla sem séu að steikja heilana í mannfólki. Það sé einfaldlega skrýtið að ætlast til að fólk sem sé að njóta náttúrunnar breyti hegðun sinni svo aðrir geti tekið myndir. Viðkomandi segist sjálfur hafa komið til Íslands og vissulega hafi hann tekið myndir en annað fólk hafi ratað á sumar þeirra sem sé allt í lagi. Það sé sorglegt að fólk grafi andlitin ofan í farsíma sína frekar en að njóta stundar og staðar. Segist viðkomandi hafa komið nokkrum sinnum til Íslands og tekið fjölda mynda en ekki muna hvar margar þeirra voru teknar. Í síðustu ferð hafi hann hins vegar ákveðið að taka færri myndir en njóta fegurðarinnar og ferðarinnar frekar og árangurinn sé að hann muni miklu betur eftir ferðinni.

Segist hann til að mynda sjá vel sér fyrir hugskotssjónum sínum umhverfi Bíldudals og Tálknafjarðar án þess að hafa myndir til að styðjast við. Hann sjái líka vel fyrir sér selinn sem hafi fylgt honum eftir við höfnina á síðarnefnda staðnum:

„Af því andskotans síminn sem eyðileggur heilann minn var ekki í höndinni á mér 98 prósent tímans.“

Fleiri taka undir með ferðamanninum en þó eru sumir sem vilja meina að hann sjálfur geti mögulega hafa verið dónalegur með því að standa of lengi kyrr á þessum stöðum og veita þannig öðrum ekki tækifæri til að komast að.

Umræðan vekur hins vegar óneitanlega upp spurningar um hvort hægt sé að virkilega njóta náttúrunnar á tímum samfélagsmiðla, farsíma með myndavélum í vösum hvers einasta manns og ferðamennsku fjöldans.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur