fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Eyjan

Þorsteinn Pálsson tætir í sig hræðsluáróður Ólafs Ragnars Grímssonar um Ísland og ESB

Eyjan
Fimmtudaginn 21. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum forseti Íslands skoðar sjö raundæmi með því að hafa asklok fyrir himin. Þegar asklokinu er lyft og raundæmin skoðuð í heild virka þau sem sterkur rökstuðningur fyrir fullri Evrópusambandsaðild.

Enn fremur hefur ekkert það gerst sem réttlætir að kippa þeim megin stoðum undan utanríkisstefnunni sem felast í hugmyndafræði vestrænna gilda, sem snýst um lýðræði og frjáls viðskipti.

Hér eftir sem hingað til verðum við að byggja utanríkisstefnuna á skýrri hugmyndafræði og köldu mati á heildarhagsmunum þjóðarbúsins. Fölsk raundæmi þjóna ekki íslenskum hagsmunum.“

Þessi orð eru niðurlag pistils Þorsteins Pálssonar, af kögunarhóli, á Eyjunni í morgun. Í pistlinum hrekur hann lið fyrir lið sjö raundæmi sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sló fram í hlaðvarpinu Chess After Dark fyrir tveimur vikum.

Ólafur Ragnar hélt því fram að ekkert grannríki Íslands eigi aðild að Evrópusambandinu og tiltekur: Grænland, Færeyja, Noreg og Bretland. Þess vegna eigi Ísland ekki heldur heima þar.

Þorsteinn bendir á að athyglisvert sé að forsetinn fyrrverandi nefni ekki til sögunnar Írland, sem er í ESB, og Dublin er mun nær Reykjavík en bæði Osló og London. Auk þess séu Grænland og Færeyjar með gjaldmiðil sem sé fast tengdur evru í gegnum dönsku krónuna. Í Færeyjum hefur verið meiri hagvöxtur og stöðugleiki en hér á landi. Þorsteinn nefnir að efnahagslegur árangur Íslands og Noregs hafi í meira en þrjá áratugi byggst á aðildinni að EES og aðlögun að regluverki ESB. Þá kalli atvinnulífið í Noregi og Bretlandi stíft eftir því að löndin fái aðild að tollabandalagi ESB.

Ólafur Ragnar fullyrti að ekkert Norðurlandanna, nema Finnland, sé með evru og að evrutenging dönsku krónunnar sé aukaatriði.

Þorsteinn bendir á að mestur hagvöxtur í grannríkjum okkar hafi verið á Írlandi, sem notar evru. Eftir hrunið hafi útflutningshagvöxtur komið fyrr fram á Írlandi með evru en á Íslandi með krónu. Þá bendir hann einnig á að tenging dönsku krónunnar sé ekki meira aukaatriði en svo að áhlaup alþjóðlegra gjaldmiðlabraskara árið 2015 leiddi til þess að jafnvel svissneski frankinn lét undan en danska krónan stóð það af sér vegna tengingarinnar við evruna og gjaldmiðils samstarfsins við Evrópusambandið.

Þá bendir Þorsteinn á að allar útflutningsgreinar, sjávarútvegsfyrirtæki, stóriðjufyrirtæki og stærstu fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi lúta vaxtaákvörðunum í Frankfurt og Washington. Útflutningsfyrirtækin eru þannig óháð vaxtaákvörðunum í Reykjavík.

Samkeppnishæfni þessara fyrirtækja með 40 til 50% þjóðarframleiðslunnar liggur einmitt í þessu. Með reykvískum vöxtum væru þau eftirbátar í samkeppninni.

Þannig hrekur Þorsteinn staðlausar staðhæfingar Ólafs Ragnars lið fyrir lið svo ekkert stendur eftir þegar upp er staðið. Pistill Þorsteins er langur og ítarlegur en vel þess virði að vera lesinn í heild. Mikilvægt innlegg í umræðu sem byggir á staðreyndum en ekki hræðsluáróðri og vísvitandi rangfærslum eins og fyrrverandi forseti lýðveldisins gerist sekur um.

Af kögunarhóli má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins

Sigmundur Ernir skrifar: Forðumst einkavinavæðingu íhaldsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá

Hjalti Árnason skrifar: Hreinsanir að Varmá
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð

Guðmundur Einarsson skrifar: Framsókn í þátíð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhelm Jónsson skrifar: Borgarlínan – hver borgar þegar reikningurinn springur út?

Vilhelm Jónsson skrifar: Borgarlínan – hver borgar þegar reikningurinn springur út?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ómerkileg pólitík á lokaspretti – Hildur hefur gefið upp boltann – kallar eftir viðbrögðum

Orðið á götunni: Ómerkileg pólitík á lokaspretti – Hildur hefur gefið upp boltann – kallar eftir viðbrögðum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum

Orðið á götunni: STRAX eftir nokkur ár miðað við reynsluna af Sjálfstæðisflokknum