fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Segir að Pútín sé að tapa stríðinu og það skapi nýtt tækifæri fyrir Trump

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 21:45

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttaskýrandi hjá CNN og sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum, Brett H. McGurk, segir að Rússar fari nú halloka í stríðinu gegn Úkraínu og nýtt tækifæri til að koma á friði hafi opnast fyrir Trump, sem þurfi að breyta um afstöðu til stríðsaðila.

Þetta kemur fram í grein McGurk á vef CNN.

McGurk bendir á að á fundi Trumps með Xi Jinping í Beijing á dögunum hafi kínverski forsetinn sagt að einn daginn kynni Pútín að sjá eftir því að hafa ráðist inn í Úkraínu.

„Nýjar vendingar á vígvellinum benda til þess að hann hafi rétt fyrir sér. Þetta færir Trump nýtt tækifæri til að binda með friðarumleitunum enda á stríðið – en með annarri nálgun en hann hefur beitt áður,“ skrifar McGurk og bendir á að hröð framþróun Úkraínumanna í drónagerð hafi breytt stöðunni á vígvellinum og nú ráðist ekki úrslitin á því hvor hafi meiri mannafla til að tefla fram.

„Í dag lítur Úkraína ekki út eins og ríki í nauðvörn að berjast við að halda velli, heldur sem frumkvöðull í vopnaþróun sem er að breyta eðli hernaðar með fjöldaframleiddum sjálfvirkum kerfum,“ skrifar hann ennfremur. Úkraínskum drónum sé nú reglulega skotið langt inn í Rússland og þeim sé miðað á herflugvelli, verksmiðjur, orkuinnviði, vopnabúr og flutningsmiðstöðvar.

Hann bendir á að Rússum hafi ekki tekist að vinna ný landsvæði á undanförunum mánuðum og raunar hafi Úkraínumönnum tekist að bæta við sig landi. Rússneski herinn hafi orðið fyrir miklu mannfalli og þær raddir verði háværari innan Rússlands sem segi að stríðsreksturinn sé að bitna of mikið á efnahag landsins.

Trump þurfi nýja nálgun

McGurk segir að Trump hafi í friðarumleitunum sínum hingað til nálgast málin á þeim forsendum að Rússland sé sterki aðilinn í deilunni og Úkraínumenn þurfi að gefa eftir landsvæði, í of miklum mæli til að Úkraínumenn geti sætt sig við tillögurnar, þeir hafi ekki viljað gefa eftir land sem þeir geta varið með hernaði. Rússar hafi síðan ekki viljað slaka á kröfum um að fá land sem þeir telja sig geta lagt undir sig.

Núna liggi besti möguleiki Trumps til að koma á friði í Úkraínu ekki í því að gera ráð fyrir veikleikum Úkraínumanna heldur átta sig á vaxandi veikleikum Rússa. Núna sé tækifæri til að koma með friðartillögur sem séu Úkraínu meira að skapi og þetta tækfæri eigi bandarísk yfirvöld að nýta sér.

Greinina má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Í gær

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika
Fréttir
Í gær

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur
Fréttir
Í gær

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“