fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Hildur á völina og kvölina – ætlar hún að leiða flokkinn sem kjósendur höfnuðu til valda?

Eyjan
Miðvikudaginn 20. maí 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Framsóknarmönnum gangi erfiðlega að sætta sig við þá staðreynd að flokkurinn galt afhroð í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Þrátt fyrir að flokkurinn hafi tapað miklu fylgi hringinn í kringum landið, mest í Reykjavík, reynir formaður flokksins að tala um góða útkomu hans og oddvitinn í Reykjavík sem missti þrjá af fjórum borgarfulltrúum talar um að Framsóknarflokkurinn hafi náð að snúa vörn í sókn á lokametrum kosningabaráttunnar.

Einhverjir Framsóknarmenn pískra sín á milli um „varnarsigur“, sem vitaskuld er ekki til sem gilt hugtak. Annaðhvort vinna menn sigur eða þeir tapa. „Varnarsigur“ er bara annað orð yfir tap.

Undantekningin frá reglunni var í Hafnarfirði þar sem Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Framsóknar, bætti við sig bæði fylgi og manni. Sigurinn í Hafnarfirði byggðist á persónuvinsældum Valdimars, sem hefur getið sér gott orð eftir að hann tók við af óvinsælum bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins.

Í Kópavogi tapar Framsókn fylgi og manni. Flokkurinn hefur undanfarin kjörtímabil verið í meirihluta í bænum með Sjálfstæðisflokknum en skreppur nú saman og verður áhrifalaus í minnihluta.

Meira að segja í Skagafirði, sem hefur nú löngum þótt höfuðvígi Framsóknar, tapar flokkurinn fylgi og er nú þriðji stærsti flokkurinn og allt bendir til þess að hann verði í minnihluta á þessu kjörtímabili.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á tvo kosti helsta til að mynda meirihluta í borginni. annars vegar getur hún myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum og hins vegar þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Einari Þorsteinssyni, sem vann „varnarsigurinn“ og er nú er eini Framsóknarmaðurinn í borgarstjórn eftir að hafa verið inni við fjórða mann á síðasta kjörtímabili.

Orðið á götunni er að innan Sjálfstæðisflokksins sé tekist nokkuð á um það hvor kosturinn sé betri. Mörgum Sjálfstæðismönnum er í nöp við bæði Miðflokkinn og Viðreisn. Sérstaklega er pirringur út í Miðflokkinn vegna þess hve harkalega ýmsir þar beittu sér gegn Sjálfstæðisflokknum í kosningabaráttunni. Nýlegir flóttamenn úr Sjálfstæðisflokknum eru sagðir hafa beitt miður huggulegum aðferðum við að sverta sína sverta sína fyrrum flokksfélaga. Kjartan Magnússon er sérstaklega nefndur til sögunnar í þeim efnum.

Orðið á götunni er að vinnubrögð flóttamannanna þurfi þó ekki að koma í veg fyrir samstarf Sjálfstæðisflokks og Miðflokks vegna þess m.a. að flóttamennirnir eru flestar langt frá því að hafa minnstu áhrif í borgarstjórnarflokki Miðflokksins.

Orðið á götunni er að það hljóti að teljast síðri kostur fyrir Hildi og Sjálfstæðisflokkinn að ganga til þriggja flokka samstarfs og þurfa að reiða sig á Einar Þorsteinsson. Hann hefur áður sýnt það að hann er tækifærissinni sem hikar ekki við að hlaupa undan merkjum telji hann sér hag í því. Þá sé hægt að setja stórt spurningarmerki við það að leiða til valda í höfuðborginni eina borgarfulltrúa flokks sem kjósendur höfnuðu með afgerandi hætti í kosningunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Pétur Marteinsson: Daðraði ungur við frjálshyggju og Sjálfstæðisflokkinn – drakk í mig sósíaldemókratíuna í Svíþjóð

Pétur Marteinsson: Daðraði ungur við frjálshyggju og Sjálfstæðisflokkinn – drakk í mig sósíaldemókratíuna í Svíþjóð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helgi segir Sjálfstæðisflokkinn standa fyrir gisinni úthverfastefnu sem valdi umferðartöfum

Helgi segir Sjálfstæðisflokkinn standa fyrir gisinni úthverfastefnu sem valdi umferðartöfum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Pétur Marteinsson: Valið stendur milli þess hvort við viljum líkjast Houston eða Kaupmannahöfn

Pétur Marteinsson: Valið stendur milli þess hvort við viljum líkjast Houston eða Kaupmannahöfn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Miðflokksarmurinn vill Ásdísi bæjarstjóra sem formann í stað Guðrúnar – tíðinda að vænta fyrir landsfund 2027

Orðið á götunni: Miðflokksarmurinn vill Ásdísi bæjarstjóra sem formann í stað Guðrúnar – tíðinda að vænta fyrir landsfund 2027