

Michael Carrick hefur hrósað Bruno Fernandes í hástert og segir fyrirliða Manchester United vera einstaka fyrirmynd bæði innan vallar og utan.
Carrick ræddi um vinnusemi portúgalska miðjumannsins á blaðamannafundi og sagði að það sem stuðningsmenn sæju í leikjum væri aðeins hluti af því sem gerði Fernandes svona mikilvægan fyrir liðið.
„Þið sjáið allar fyrirsagnirnar um sköpunarkraftinn hans og stöðugleikann í frammistöðunni. En það snýst líka um hvernig hann lifir lífi sínu,“ sagði Carrick.
Hann sagði jafnframt að Fernandes væri einn duglegasti leikmaður hópsins og kæmi stöðugt á óvart með atvinnumennsku sinni.
„Við reynum stundum að gefa honum frídag en hann mætir samt alltaf. Hann er alltaf kominn í morgunmat á undan mér og borðar eggjahræru áður en ég mæti,“ sagði Carrick brosandi.
Fernandes hefur átt frábært tímabil með Manchester United og jafnaði nýverið stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar með 20 stoðsendingum. Hann hefur verið lykilmaður hjá liðinu bæði sem leikmaður og leiðtogi.