fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 08:00

Bernardo Silva / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atlético Madrid hefur bæst í hóp félaga sem vilja fá Bernardo Silva frá Manchester City í sumar samkvæmt Sky Sports.

Portúgalski miðjumaðurinn verður samningslaus eftir tímabilið og er að yfirgefa Etihad eftir mörg farsæl ár hjá City. Bernardo hefur verið fyrirliði liðsins á tímabilinu og lykilmaður í velgengni félagsins undir stjórn Pep Guardiola.

Barcelona og Juventus hafa lengi verið nefnd sem helstu áhugasömu félögin en nú er Atlético Madrid einnig sagt fylgjast grannt með stöðu hans. Þá hefur Bernardo einnig verið orðaður við lið í Sádi-Arabíu og MLS-deildina í Bandaríkjunum.

Samkvæmt heimildum Sky Sports er draumur Bernardo þó að spila fyrir Barcelona. Katalónska félagið hefur áður reynt að fá hann til sín en fjárhagsstaða félagsins hefur gert slík kaup erfið.

Bernardo hefur enn ekki tekið endanlega ákvörðun um framtíð sína en talið er að næstu vikur verði afgerandi.

Hinn 31 árs gamli leikmaður hefur verið einn stöðugasti miðjumaður Evrópu undanfarin ár og gæti orðið eitt stærsta nafn sumargluggans þegar hann yfirgefur Manchester City á frjálsri sölu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Staðfest hvenær og hvernig sigurhátíð Arsenal verður

Staðfest hvenær og hvernig sigurhátíð Arsenal verður
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns