

Barcelona hefur samkvæmt spænskum miðlum dregið úr áhuga sínum á Julián Álvarez hjá Atlético Madrid og beinir nú sjónum sínum að João Pedro hjá Chelsea.
Katalónska félagið hefur verið að leita að nýjum framherja fyrir næsta tímabil, sérstaklega með brotthvarf Robert Lewandowski í kortunum. Álvarez var lengi talinn draumakostur Barcelona en samkvæmt Mundo Deportivo hefur félagið nú ákveðið að færa fókusinn yfir á João Pedro.
Brasilíski framherjinn, sem er 24 ára gamall, hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með Chelsea og er talinn henta betur fjárhagslega og taktískt fyrir Barcelona.
João Pedro getur leikið bæði sem miðframherji og kantmaður og stjórnendur Barcelona telja hann passa vel inn í sóknarleik félagsins til framtíðar.
Álvarez er áfram lykilmaður hjá Atlético Madrid og talið er að verðmiðinn á argentínska landsliðsmanninum hafi einnig haft áhrif á ákvörðun Barcelona.
Chelsea gæti þó reynst erfitt viðureignar í samningaviðræðum þar sem félagið vill ekki missa einn af efnilegustu sóknarleikmönnum sínum.